fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni fyrir sína ræðu. Hv. þingmaður virðist áhugamaður um stöðugleikaregluna og ég er svo sem hlynnt upphaflega tilgangnum en mér þykir hún ansi gölluð. Mig langar til að spyrja hv. þingmann, í ljósi þess að hann talar um að útgjöld til varnartengdra mála myndu aukast: Finnst hv. þingmanni eðlilegt að þau útgjöld séu fyrir utan stöðugleikaregluna? Hvernig sér hann fyrir sér að fjármagna þessi útgjöld? Væri það með skattahækkunum eða aðhaldi ríkissjóðs? Ég vek athygli á því að stöðugleikareglan nær aðeins til sirka 80% af útgjöldum ríkissjóðs þannig að mig langaði að heyra hvort hv. þingmaður væri ekki opinn fyrir því að skoða það að endurmeta regluna svo að hún í raun og veru nái betur utan um raunverulegt viðfangsefni sem er að veita aðhald gagnvart aukningu útgjalda ríkissjóðs. Og að lokum, sem er kannski meginspurningin, þá liggur fyrir að þessi ríkisstjórn er að fara að skila hallalausum fjárlögum, ef það tekst. Ekki með því að taka gríðarlega til í ríkissjóði heldur á að halda áfram að auka útgjöld, það á að skila (Forseti hringir.) hallalausum fjárlögum með því að hækka skatta nógu mikið til að þau dekki alla útgjaldagleði þessarar ríkisstjórnar. (Forseti hringir.) — Fyrirgefið, ég horfði ekki á klukkuna.
(Forseti (BHar): Ræðutími er bara ein mínúta þegar fjórir fara í andsvör.)
Spurningin er bara: Hvar er þessar skattahækkanir að finna?