fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Já, samspil stöðugleikareglunnar og varnarmála er áhugavert viðfangsefni. Það er ákveðin opnun í lögum um opinber fjármál, þegar stöðugleikareglan var innleidd, sem vísaði til þess að við tilteknar aðstæður mætti víkja frá stöðugleikareglunni og það var bætt inn vísun til varnarmála en þó hefur ekki verið útfært nákvæmlega hvernig verði farið með það. Það liggur alveg fyrir að það eru umtalsverð framlög til varnartengdra málefna nú þegar sem hafa bara ekki verið tekin saman sem slík. Það er samtal meðal allra þjóða innan NATO um hvernig þetta verði best gert og það er vinna innan ráðuneytanna varðandi það og við munum vonandi fá innsýn í það. Þannig að það liggur ekki nákvæmlega fyrir hvernig með þetta verður farið en það er nauðsynlegt að sýna þarna mikla ábyrgð en hafa líka ákveðið gegnsæi, bæði gagnvart því hvar er verið að auka framlögin (Forseti hringir.) og t.d. hvaða innviðir geti talist til varnartengdra innviða.