fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þetta andsvar og vísa til umfjöllunar um breytingar á skattumhverfi í fjármálaáætluninni. Þær hafa ekki allar verið útfærðar en það er áætlað hverju þeim er ætlað að skila og það er bara sjálfsagt að kalla eftir frekari upplýsingum eða útfærslum á því. Það sem hefur verið sagt skýrt er um virðisaukaskatt á baðlón t.d. Í raun fellur það í þann flokk, sem er eitt af orðunum sem maður þurfti aðeins að venjast þegar maður kom inn í fjárlaganefnd þingsins, skattstyrkir. Það er ekki full virðisaukaskattsgreiðsla sem tengist baðlónunum og það hefur árum saman verið kallað skattstyrkur. Það er sem sagt verið að lækka þennan skattstyrk með því að færa baðlónin í kannski eðlilegra virðisaukaskattsþrep. Það má sjálfsagt deila um það eins og annað. En við skulum bara gegnumlýsa það í vinnu nefndarinnar í hverju þetta felst og hvernig þetta verður útfært.