157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[15:20]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Lánsfjárjöfnuðurinn skrökvar ekki, hann segir bara: Annaðhvort þarftu að taka lán eða ekki. Ef hann er neikvæður þá þýðir það að þú þarft að greiða minna í það en ég þakka fyrir skýr svör hvað þetta varðaði. En það eru tvær spurningar af því að við erum sammála um það að það er mjög gott að menn stefni að hallalausum fjárlögum. Í ljósi reynslunnar, og þá er ég að vísa í síðasta haust eða fyrir áramót í fjárlögum, hefur hv. þingmaður engar áhyggjur af því að 1 milljarður í afgang sé svolítið lítið? Það gæti verið erfitt í meðförum þingsins að ná því. Síðan er hitt sem brennur held ég á mjög mörgum, en hv. þingmaður er þingmaður Samfylkingar sem lofaði því að taka strax á vöxtum og verðbólgu og ég geri ekki ráð fyrir öðru en að þau hafi undirbyggt þau loforð mjög vel. Þau voru með plan og eins og frægt er orðið átti að nota sleggju á þetta strax og menn tækju við völdum. Mér finnst á ræðu hv. þingmanns eins og menn hafi algerlega misskilið það verkefni og þetta sé bara einhvern veginn ekki hægt. Hvar er sleggjan? Er hún eitthvað á leiðinni? Það er svolítið síðan hv. ríkisstjórn tók við.