fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka þetta síðara andsvar og koma aðeins inn í umræðu um fjáraukalögin og niðurstöðu ársins 2025. Það er nefnilega ekki hægt að tala eins og fjárlög hefðu orðið hallalaus ef fjáraukalögin hefðu ekki komið til vegna þess að það sem gerist í lok árs 2024 og þarna um áramótin eru gríðarstórir kjarasamningar við kennara en líka við heilbrigðisstarfsfólk og alls konar aðrar breytingar sem ekki höfðu verið settar inn í kosningafjárlögin, voru raunverulegar jafnvel þó að þær hefðu ekki verið settar inn í frumvarpið. Þar var því ekki um að ræða mikla aukningu sem kom til vegna stefnu nýrrar ríkisstjórnar heldur bara verið að (Gripið fram í.) takast á við raunveruleikann og setja inn í fjáraukalög, auk auðvitað breytinga í tengslum við bæði uppgjör ÍL-sjóðs, verðbreytingar sem höfðu verið vanmetnar og þar fram eftir götunum. En milljarður er auðvitað ekki mikið svigrúm þannig að það þarf að halda vel á spöðunum.