fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég held að það sé óhætt að segja að geðheilsa þess sem hér stendur og annarra þingmanna Sjálfstæðisflokks sé með ágætum í þessari umræðu í dag, bara hreint með ágætum. Hv. þingmaður ætti kannski að reyna að svara efnislega þeim spurningum sem hafa verið lagðar fyrir hann í andsvörum sem snúa að þessu máli og lesa umsögn fjármálaráðs við málið. Þetta er ekkert flóknara.
Nú vil ég aðeins leggja í aðra átt, varðandi virðisaukaskatt á baðlón sem eru fjögur talsins í Norðausturkjördæmi, kjördæmi okkar hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar. Þetta eru helstu ferðamannaseglar svæðisins að mörgu leyti eins og baðlón almennt eru á Íslandi. Hér er lagt svolítið hressilega í. Hér er verið að leggja til raunverulega hækkun á miðaverði baðlóna um 10%, það á að hækka virðisaukaskatt úr 11% í 24%. Það er þannig í Norðausturkjördæmi að mjög stór hluti þeirra sem sækja baðlón eru Íslendingar og heimafólk. (Forseti hringir.) Er þetta endilega til þess fallið að vera eitthvað frábært fyrir íbúa í Norðvesturkjördæmi sem eru að byggja upp ferðaþjónustu, byggja upp atvinnugrein allt árið í ferðaþjónustunni? (Forseti hringir.) Er þetta frábært mál? Það væri ágætt að fá svar við því frá hv. þingmanni.