fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér fjármálaáætlun til næstu ára. Ég verð að byrja á að segja það sem ég hef áður sagt að mér finnst mjög miður að hér fylgi ekki öll gögn með. Þá er ég að vísa í það að í fjármálaáætlunum voru áður markmið og mælikvarðar skrifuð undir málefnasviðunum og það voru umtalsvert fleiri blaðsíður undir. Það gerði það að verkum að í aðhaldsstarfi okkar þingmanna gátum við spurt viðkomandi ráðherra út í það: Já, þetta er fjármagnið sem þú ert að áætla hér á næstu árum og þetta eru verkefnin og þetta eru mælikvarðarnir. Við gátum fylgt þessu eftir. Það er ágæt rammagrein hér í umsögn fjármálaráðs um lög um opinber fjármál. Ég verð bara að segja að ég er ósammála skilgreiningu hæstv. ráðherra og ráðuneytisins á því að þetta eigi ekki að vera við lýði. Í mínum huga er það þannig að þegar lög um opinber fjármál voru innleidd þá vorum við að gera alveg svakalega breytingu á þessu verklagi okkar. Í staðinn fyrir að setja alltaf einhverja ákveðna ramma inn á einhver málefnasvið og svo fóru viðkomandi ráðuneyti að fylla inn í það og finna leiðir til að nýta þessa fjármuni þá ættum við fyrst að vera með stefnuna. Hvað ætlar viðkomandi ráðherra að gera í sínum málaflokki? Skrifa út markmið og peningarnir fylgdu svo þessum verkefnum.
Virðulegur forseti. Ég skildi lög um opinber fjármál alla vega með þessum hætti. Það eru til ófáar ræður hér, frá mínum fyrstu þingárum, þar sem ég var að hrósa þessu verklagi. Ég veit að það var ekki fullkomið. Ég veit alveg að stundum voru þessir mælikvarðar unnir eftir á og þeir voru misgóðir, eða hvað eigum við að segja, milli ráðuneyta. En ég vona, samkvæmt því samkomulagi sem hér var gert, að við horfum til betri tíðar og við sjáum það aftur hér á næsta ári þegar við fáum fjármálaáætlun að þessi gögn muni skila sér inn til nefndarinnar. Ég held að það sé rosalega mikilvægt fyrir okkur þingmenn í eftirlitshlutverki okkar að fylgja því eftir hvort ráðherra sé annars vegar innan fjárheimilda en sé hins vegar að nota peningana í það sem viðkomandi ráðherra sagðist ætla að gera og ná þeim árangri sem stefnt var að.
En að þessari fjármálaáætlun sem við ræðum núna, fyrir árið 2027–2031. Hæstv. ríkisstjórn og þeir sem hana styðja hér á Alþingi hafa farið mikinn um það hversu stór og mikil og merkileg þessi áætlun er. Ég get alveg byrjað á því að óska hæstv. ráðherra til hamingju með þessa áætlun. Ég átta mig á því að það er heilmikið mál að koma svona áætlun saman og reyna að halda utan um útgjaldavæntingar alls staðar í kerfinu. En ég get ekki verið sammála því að hér sé um agaða fjármálastjórn að ræða og verð þá, virðulegur forseti, að fá að vísa í það sem margir aðrir hafa gert hér í dag sem er álitsgerð fjármálaráðs. Ég minni líka á það að fjármálaráð er eitt af þessu sem kom með lögum um opinber fjármál og það er mikilvægt fyrir okkur að hafa hér hæfa hagfræðinga, óháða aðila, sem rýna þetta og segja okkur hvað þeim finnst raunverulega um þetta. Það á því ekki að þurfa að vera hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir, sem er úr Sjálfstæðisflokknum, sem er að segja eitthvað heldur er gagnrýnin byggð á forsendum okkar hæfasta fólks. Þá verð ég að byrja hér á að benda á eina af helstu ábendingunum frá fjármálaráði sem segir, með leyfi forseta: „Vísitölutenging almannatrygginga ógnar sjálfbærni opinberra fjármála.“ Þetta er alveg skýrt. Þetta ítrekuðum við hér í ræðu þegar verið var að lögfesta þetta mál. Jú, jú, og einhverjir þingmenn töluðu svo bara þannig að þeir væru bara ósammála þessu, að þeir væru bara ósammála því mati okkar færustu hagfræðinga að svo sé. Það segir hér í greinargerðinni, með leyfi forseta:
„Fjármálaráð telur þetta áhættusama stefnumótun sem getur haft víðtækar og langvarandi neikvæðar afleiðingar fyrir sjálfbærni og festu opinberra fjármála.“ — Þetta er álit fjármálaráðs og ég er því sammála.
Hér segir líka, með leyfi forseta: „Það útgjaldasvigrúm sem stjórnvöld töldu sig hafa áður en lögin“ — þ.e. lögin um stöðugleikaregluna — „voru samþykkt er ekki lengur til staðar. Fjármálaráð telur að vísitölutenging almannatrygginga sé forsendubrestur sem kalli á endurskoðun útgjaldaþaks stöðugleikareglu til lækkunar. Þá segir fjármálaráð jafnframt: „Framkvæmd stöðugleikareglu er ógegnsæ og óljóst er hvernig hún eigi að stuðla að jafnvægi í afkomu.“ Þetta er beint upp úr áliti fjármálaráðs. Þá segir jafnframt: „Óútfærðar afkomubætandi aðgerðir draga úr trúverðugleika.“ Og áfram: „Fjallað er um óútfærðar afkomubætandi aðgerðir í framlagðri áætlun. Nefnt er að fækka skuli ríkisstarfsmönnum og að farið verði í aðrar sértækar hagræðingaraðgerðir án þess að nokkuð sé fjallað um framkvæmdina. Slíkt er ógagnsætt og ótrúverðugt.“ — Aftur: Þetta er álit fjármálaráðs og ég er þessu sammála.
Virðulegur forseti. Það verður að benda á það þessu til fyllingar að það var eitt fyrsta verk þessarar ríkisstjórnar að auglýsa eftir hagræðingartillögum frá almenningi og það fylltist innhólfið hjá Stjórnarráðinu því að fólk þarna úti, bæði ríkisstarfsmenn og aðrir aðilar, kom með alls konar hugmyndir að hagræðingaraðgerðum, alls konar hugmyndir. Enn man ég ekki eftir nema mögulega einni sem hefur ratað hér inn í þingið í formi laga, hún er enn þá í meðförum nefndar, og það varðar handhafalaun forseta. Ég tek því bara undir það sem fjármálaráð segir hér: Þessar óútfærðu afkomubætandi aðgerðir — á íslensku þýðir þetta bara að hér er verið að tala um einhverja hagræðingu en það er ekki búið að útfæra það. Það er ógagnsætt og ótrúverðugt. Þá segir líka hér, með leyfi forseta: „Verðbólguvæntingar eru enn háar og staða og horfur opinberra fjármála virðast ekki draga úr þeim svo neinu nemi.“ Þau skilaboð sem fjármálaáætlanir stjórnvalda senda ráða miklu um verðbólguvæntingar heimila og fyrirtækja. Rannsóknir sýna að aðgerðir í ríkisfjármálum hafa mjög sterk og fljótvirk áhrif á verðbólguvæntingar.
Virðulegur forseti. Hvað þýðir þetta hérna? Ég las þetta beint upp úr áliti fjármálaráðs. Þetta þýðir að ríkisstjórnin sem tók hér við völdum og sagði að sitt stærsta mál væri að ná niður vöxtum og verðbólgu hefur engan trúverðugleika til að ná þessum árangri. Þetta er önnur fjármálaáætlunin sem þessi ríkisstjórn kemur fram með. Vaxtalækkunarferlið hjá Seðlabankanum var hafið í tíð síðustu ríkisstjórnar en eftir að þessi ríkisstjórn sýndi á spilin þá stöðvaðist þetta vaxtalækkunarferli og eina vaxtalækkunin sem kom í kjölfarið var reyndar út af frægum hæstaréttardómi. Það er allur árangurinn sem þessi ríkisstjórn hefur náð í þessu þó stóra máli, því sem Samfylkingin, flokkur hæstv. forsætisráðherra, fór fram með í kosningabaráttunni að væri þeirra allra stærsta mál. Þetta er auðvitað stóra málið. Ég átta mig á því að það að ná niður verðbólgu er ekkert auðvelt mál en þá skiptir trúverðugleiki öllu. Enn sem komið er hefur mat þeirra sem eru þarna úti á þessari fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar, hún er númer tvö, ekki sýnt að markaðurinn hafi einhverja trú á því sem hér er boðið upp á.
Virðulegur forseti. Hér segir líka: „ [...] þótt aðgerðum á gjaldahlið sé mætt með aðgerðum af sömu stærðargráðu og tekjuhlið þá eru þær ekki endilega hlutlausar. Það hvort það sé smávægilegur halli eða afgangur á fjárlögum breytir litlu í stóra samhenginu.“ — Virðulegur forseti, þetta eru ekki mín orð. Þetta er aftur lesið upp úr áliti fjármálaráðs.
Ég vil ekki sjá halla á fjárlögum og ég studdi ríkisstjórn þar sem var oft halli. Af hverju var það? Jú, það vita það allir hér inni þótt það gleymist stundum að nefna það í ræðum. Það sneri að þeim aðstæðum sem við vorum í, í Covid, í Reykjaneseldunum, í stríði í Evrópu. Það var því alveg skýrt hvert stefnt var. En þessar aðferðir og aðgerðir sem hér hafa verið kynntar í tíð þessarar ríkisstjórnar, hvort sem það er í þessari fjármálaáætlun eða þeirri síðustu, og það að státa sig af einhverjum örlitlum viðsnúningi — ég ætla ekki að segja að það sé vont, ég vil ekkert að ríkissjóður sé rekinn með tapi, alls ekki. (Forseti hringir.) En fjármálaráð segir það bara hérna: Þetta breytir litlu í stóra samhenginu. Hér eru ekki stigin (Forseti hringir.) nægilega stór skref til að ná þeim markmiðum sem að var stefnt. — Virðulegur forseti, þetta er auðvitað allt of stuttur tími til að ræða svona mikið mál.