fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir sína ræðu. Nú mætti ætla af hennar ræðu að þetta væri tíunda fjármálaáætlunin sem ég er að leggja fram en ekki önnur og það ástand sem hv. þingmaður lýsir á sér náttúrlega sögulegar skýringar í langvarandi hallarekstri ríkissjóðs sem núna loksins er verið að snúa við. En mig langar til að tæpa á tvennu sem fram kom sem ekki stenst fyllilega skoðun. Það er annars vegar þróun tekna ríkissjóðs sem eru lækkandi á tímabilinu og líka þróun gjalda sem fara einnig lækkandi á tímabilinu og lækka hraðar en tekjur og það er þannig sem tekjuafgangurinn verður til sem leiðir til sjálfbærari stöðu ríkisfjármálanna.
Ég hjó þó sérstaklega eftir einum punkti í ræðu hv. þingmanns sem er vísun hennar í mjög ríflega hækkun örorkubóta á árinu 2025 og mig langar til að spyrja hv. þingmann: Veit hún hvers vegna þær hækkuðu?