fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég tel mig hafa svarað því, eins og ég nefndi hér með Landsvirkjun áðan, að mikilvægir grunninnviðir eigi að vera í eigu þjóðarinnar. Þegar hv. þingmaður talar hér um orkufyrirtæki í eigu sveitarfélaga og ber því við að Sjálfstæðisflokkurinn hafi selt þau öll með einhverjum lélegum árangri þá vil ég fá að fara í söguskýringu og minna hv. þingmann á að það voru félagar hans í Samfylkingunni sem nánast gáfu Hitaveitu Hveragerðis á sínum tíma. Það voru félagar hans í Samfylkingunni sem gerðu það fyrir margt löngu og ég man að þá sagði einn sjálfstæðismaður í Hveragerði: Þetta er svona eins og þegar Kúveit myndi selja olíulindirnar sínar. Þannig að það er ekki eingöngu við Sjálfstæðisflokkinn að sakast í þeim efnum.
Og þegar hv. þingmaður talar hér um að hægri stefnan hafi ekki reynst vel þá verður hann að fara út og fá sér göngutúr um íslenskt samfélag og sjá hversu stórkostlegt samfélag hægri menn á Íslandi hafa byggt upp í gegnum áratugina.