fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir andsvarið og ég er sammála þingmanninum um það að við verðum að hugsa um þessa heildarmynd sem við erum báðir að tala um, held ég. Þá verðum við einmitt að lesa svolítið saman og kannski kafa vel ofan í bæði fjármálaáætlun, sem við erum að ræða hér, og samgönguáætlun og gera okkur hugmynd um það hvaða verkefni gætu farið inn í innviðafélagið og svo teikna upp út frá þessari heildarmynd eitthvert framkvæmdaplan til næstu 15 ára, ekki bara fimm ára eins og fjármálaáætlunin, sem helst allur þingheimur gæti staðið að sem stóru samgönguátaki. Þannig skil ég hugsunina á bak við innviðafélagið og þessa heildarmynd og það er svolítið verkefni vorsins að ná utan um þetta þannig að við getum sameinast um það.