157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[19:22]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni kærlega fyrir sína ræðu. Mig langaði að benda á það sem er nokkuð áhugavert í ræðu hv. þingmanns, það sama og gerðist hér í ræðu hv. þm. Dags B. Eggertssonar fyrr í dag, þar sem núverandi ríkisstjórn er farin að tala svolítið um ytri aðstæður og áföll utan í heimi og hvernig það hefur áhrif á efnahagsmálin. Það er náttúrlega í meira lagi fyndið í ljósi þess að sérstaklega þingmenn Viðreisnar eyddu fyrstu sjö mánuðum kjörtímabilsins í að tala um síðustu sjö ár hjá fyrrverandi ríkisstjórn og þá mátti ekki tala um efnahagsmálin en nú er það allt í lagi af því að þau þurfa sjálf aðeins að skýla sér með því. Við skulum samt líta á staðreyndirnar: Það eru ekki einhver utanaðkomandi áföll úti í heimi sem hafa þessi víðtæku áhrif á efnahagsmálin undir stjórn þessarar ríkisstjórnar. Það er alveg klárt mál. Við umræðu um fjárlög hér í desembermánuði síðastliðnum og eftir þau var bent á að t.d. bara vörugjöldin myndu auka verðbólguna um 0,7%. Þetta er klárlega heimatilbúinn vandi sem ég veit ekki hversu margir hagfræðingar og viðskiptafræðingar hér úti í feltinu og sömuleiðis líka bara nefndarmenn og hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa bent á.

Mig langar að spyrja hv. þingmann: Höfðu aðgerðir ríkisstjórnarinnar sjálfrar bara engin áhrif á þessa verðbólgu eins og hún stendur núna? Það er alveg rétt að Viðreisn hefur talað mjög skýrt fyrir því frá stofnun flokksins og rak heila kosningabaráttu fyrir síðustu kosningar um það að laga hér og létta budduna hjá landsmönnum, efnahagsmál, verðbólga og vextir, sem er vel og eitthvað sem Sjálfstæðisflokkurinn og Viðreisn náðu saman um alla vega í orði en kannski ekki lengur á borði miðað við hvernig hefur farið. Höfðu aðgerðir ríkisstjórnarinnar varðandi fjárlög síðasta árs og efnahagsmál þessa árs bara engin áhrif á verðbólgu?