fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Höfum trú á íslensku efnahagslífi og trú á íslensku atvinnulífi sem hefur tekið grundvallarbreytingum á síðustu tíu, tólf árum. Árið 1952 voru 92% af útflutningstekjum Íslendinga af sjávarútvegi. Það er um 20% í dag. Við erum komin með miklu fleiri atvinnugreinar og miklu jafnari gjaldeyristekjur inn í landið frá fleiri atvinnugreinum. Það sem hefur gerst á Íslandi á undanförnum tveim, þrem áratugum er náttúrlega gríðarlega — ja, lítum bara á kaupmátt og uppbyggingu samfélags. Það er nú bara þannig að kaupmáttur, eða við skulum segja hagvöxtur, í Evrópu er með allt öðrum hætti heldur en hefur verið á undanförnum árum án þess að ég fari í Evrópusambandsumræðuna. En við þurfum að leysa þetta hér. Það eru ríkisfjármálin, það er Seðlabanki Íslands sem fer með peningastefnuna, það er atvinnulífið og samningaviðræður og samningagerð sem ráða hér för. (Forseti hringir.) Það verður alltaf innlent mál að takast á við þessi atriði. Þetta leysist ekkert með Evrópusambandinu eða upptöku evru á Íslandi. (Forseti hringir.) Það eru einhver gylliboð sem munu aldrei standast.