157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[20:12]
Horfa

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (S):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessa yfirferð og vil nota tíma minn hér í ljósi þess að við erum að fjalla um fjármálaáætlun, sem er þá lengri tíma stefnumörkun heldur en fjárlög og fjárlagafrumvarp, til að spyrja hæstv. ráðherra út í 1,5 prósentin sem samþykkt voru á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins síðastliðið sumar. Hér segir á bls. 123, með leyfi forseta:

„Gert er ráð fyrir að framlög til málefnasviðsins verði aukin um 1,5 ma.kr. árið 2027 og 500 m.kr. árlega árin 2028–2031 …“

Þetta er vissulega til viðbótar við það sem áður var tilkynnt. En ef við horfum á það sem við erum með í útgjöld í dag — þar sem sannarlega liggur ekki fyrir nákvæm upphæð á því hvað við myndum telja til sem myndi falla undir þetta 1,5%, þ.e. varnartengd útgjöld en ekki bein varnarútgjöld. Við erum ekki að fara úr 0 kr. í 1,5% af vergri landsframleiðslu en við erum þó mjög langt frá 1,5% af vergri landsframleiðslu. Sú ákvörðun sem við vorum þátttakendur í að taka og studdum á leiðtogafundinum gerir ráð fyrir að þessu markmiði sé náð á tíu árum en það þýðir frá árinu 2025. Árið 2031 eru sex ár liðin frá þeim tíma og með þessari áætlun er ekki að sjá að þar sé mikil alvara á bak við þær skuldbindingar. Ég er ekki að segja að þær birtist allar hér. Þær geta auðvitað birst í öðrum málaflokkum hjá öðrum ráðherrum. En mig langar að kalla eftir því frá hæstv. ráðherra sem ber ábyrgð á varnarmálum: Hvar er þessi vinna stödd? Hvernig sér ráðherra fyrir sér að ná þessum markmiðum? Er þetta samtal hafið? Því að það mun kalla á pólitíska umræðu um hvernig eigi að fjármagna þetta og ég hef áhyggjur af því að sú umræða taki tíma bæði hér í þinginu og innan ríkisstjórnar.