157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[20:17]
Horfa

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (S):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það sem skiptir máli er auðvitað annars vegar að við áttum okkur á því hvar við stöndum nú í útgjöldum og getum þar ekki verið að þrýsta og telja hluti undir 1,5% sem eiga þar alls ekki heima. Ég held að ekkert land eigi að gera það og allra síst landið sem gerir þó ekki meira en við gerum og reiðum okkur í mjög miklum mæli á bandalagið sjálft og vilja bandalagsríkja til að styðja við þetta allt saman þar sem framlag okkar er í allt öðrum mæli og ekki hægt að bera saman við aðra. Hins vegar, og ástæðan fyrir því að ég spyr, er að þessi fjármálaáætlun er til ársins 2031 og hæstv. ráðherra segir að hennar vilji standi til að ná þessu markmiði fyrr. Ég er sammála hæstv. ráðherra í því fyrir utan það að guð einn veit í hvaða stöðu við verðum að þeim tíma liðnum, vonandi á betri stað en það er ekki hægt að gera ráð fyrir því. Ég spyr vegna þess að það tekur tíma að finna út úr því í hvað peningarnir eigi að fara; hver er forgangsröðun fjárfestinga til þess að sinna okkar heimavinnu og tryggja það að við getum sagt við almenning í landinu að við séum að sinna því og gera þá hluti sem við eigum að hafa á hreinu. Það tekur tíma; fjárfestingar taka tíma og ákvarðanatakan tekur tíma.

Það sem ég hef áhyggjur af er að þetta eru háar fjárhæðir og til að ná því fram þarf pólitískt samtal, bæði innan ríkisstjórnar en fyrst og síðast hérna á þinginu þar sem fjárveitingavaldið er. Það liggur ekki fyrir með hvaða hætti eigi að fjármagna þetta, á hvað miklum hraða og í hvað peningarnir fara. Á að hagræða fyrir þessu? Á að forgangsraða? Á að hækka skatta til að mæta þessu? Það er skýr vilji hjá a.m.k. Samfylkingunni og ríkisstjórninni að til að eiga fyrir öllu sé einfaldasta leiðin að sækja meira hjá öðrum, þ.e. almenningi og fyrirtækjum í landinu. Á að umbreyta einhverjum eignum sem ríkið á og situr á í fjárfestingar? Ég er á þeirri skoðun að við ættum að gera það. (Forseti hringir.) Ég er ekki viss um að það sé sátt um það inni í ríkisstjórninni. Tíminn líður og við þurfum að fara að geta séð á spilin, hvernig við eigum að ná þessum markmiðum.