157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[20:48]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegur forseti. Við erum að ræða hér fjármálaáætlun en það mun líka margt koma fram í sambandi við fjárlögin. Við erum auðvitað í þessum breytta heimi og það má eiginlega segja að vegna þessara miklu breytinga sem eru að eiga sér stað þessar vikurnar geti áherslurnar í varnarmálum líka breyst að einhverju leyti innan þess ramma. Þess vegna segi ég: Við erum m.a. að vinna að því að skila okkar greinargerð eða skýrslu, ég held að það sé 15. maí — við gerum það. En verkefnin sem teljast til 1,5% verða að styðja við framkvæmd varnaráætlana, efla varnir innan bandalagsins og auka áfallaþol í samfélaginu, ekki síst vegna fjölþáttaógna, eins og ég hef áður getið um, samkvæmt útgefnum viðmiðum frá bandalaginu. Þetta er það sem við erum að vinna að. Við erum með þessi getuviðmið og við erum með áfallaþolið frá NATO. Við erum búin að taka það nokkrum sinnum fyrir í ríkisstjórninni hvernig við vinnum að því. Það eru sjö áfallaþolsviðmið NATO og það eru ýmis ráðuneyti að vinna að þessu og koma að því, hvort sem það eru heilbrigðisráðuneytið eða dómsmálaráðuneytið, innviðaráðuneytið eða önnur ráðuneyti. Þannig að enn og aftur undirstrika ég að þetta er verkefni sem við sjáum fram á að verði unnið þvert á ráðuneyti, þvert á stofnanir og við þingið en undir mjög vökulu auga og eftirliti af hálfu NATO. Ég held að það muni líka á endanum skila sér í öflugri vörnum fyrir okkur og meira öryggi.

Enn þá er eftir að taka saman og ég vil undirstrika það að við erum að taka saman þessa dagana hversu mikið af þessum skuldbindingum og af 1,5% við uppfyllum nú þegar. Ég hef getið þess að það er líklega á bilinu 0,8–0,9% (Forseti hringir.) sem við nú þegar uppfyllum hvað varðar þær kröfur sem gerðar eru af hálfu NATO og falla undir 1,5%.