157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[21:09]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég verð að segja eftir þessa umræðu, mér skilst að þetta sé síðasti þingmaðurinn hér í þessari umræðu, og núna eru komnir tveir þingmenn Miðflokksins, þá velti því fyrir mér á hvaða leið Miðflokkurinn er þegar kemur að öryggis- og varnarmálum. Hann leggur fram fyrr á þessu þingi skýrslu eða tillögu um það hvernig eigi að standa að þjóðaröryggismálum og nefnir ekki einu orði Rússland, nefnir ekki einu orði Úkraínu eða að standa með Úkraínu. Síðan kemur hv. þingmaður hingað upp og segir að engin bandalagsríki uppfylli þessi skilyrði. Það er verið að tala um þessi skilyrði til 2035, að bandalagsríkin á þessu ári muni verja að lágmarki 2% til varnarmála. Það eru öll ríki nema tvö sem eru að uppfylla það á þessu ári. Síðan eru sum komin lengra og eru að setja meira í varnar- og öryggismál heldur en Bandaríkin sjálf sem setja innan við 4%. Þau eru að gera þetta út af því að það er raunveruleg ógn í austri. Það er raunveruleg ógn sem NATO hefur m.a. skilgreint, sem eru Rússar. Svo koma menn hér inn og tala á léttvægan hátt um að við megum ekki tala um það að vera trúverðugur bandamaður sem felur í sér að við tökum hlutverk okkar af fullri ábyrgð og alvöru. Í því felst okkar hlutverk. Ef hv. þingmaður vissi um þau samtöl sem ég hef m.a. gert utanríkismálanefnd grein fyrir, það er alveg ljóst að þrýstingur af hálfu bandalagsríkja er mjög mikill á að við Íslendingar uppfyllum þessi skilyrði. Það er breyttur heimur og það er ekkert verið að gefa afslátt gagnvart okkur þegar kemur að 1,5%. Við fáum ítrekað, alla vega af og til, þessa spurningu: Þó að þið séuð ekki með her, af hverju farið þið ekki upp í 5%? Veskú, þá skulum við sýna samstöðu og samheldni þegar kemur að því að uppfylla þetta 1,5%. Ég vil draga það fram að Pólland er núna með 4,48%, Litáen er með 4% og Lettland er með 3,73%. (Forseti hringir.) Ég vil líka undirstrika að þetta er ekki birgðatalning bandalagsríkja. Hins vegar er bandalagið að taka á þessum heimsmálum sem við stöndum frammi fyrir af festu. Ógnin er raunveruleg og hún er bæði hernaðarleg en líka í gegnum fjölþáttaógnir (Forseti hringir.) og þess vegna þurfum við að treysta samstarf við NATO og önnur ríki Evrópu og Kanada.