fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Við skulum spyrja að leikslokum vegna þess að stuðningur er með tvennum hætti. Annars vegar erum við með sjóði eins og grunnrannsóknasjóðina, Rannsóknasjóð og Tækniþróunarsjóð, þar sem við bættum á síðasta kjörtímabili inn 1 milljarði kr. Hann hafði verið vansveltur mjög lengi og við breyttum því. Það er alveg rétt að umsóknum hefur verið synjað í auknum mæli. Ég kom m.a. að því í fyrri ræðunni og ég bendi aftur á að allt frá 2021 hafa Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, OECD og Skatturinn kallað eftir því að skerpt sé á þessu þannig að það sé öruggt mál að þeir séu fyrst og fremst að fá þetta sem eiga rétt á að fá þetta. En að því gefnu þá verður þetta að ganga greiðar fyrir sig heldur en hefur verið. Þess vegna var það sem síðasti hæstv. fjármálaráðherra síðustu ríkisstjórnar gerði nýjan samning við Rannís árið 2021 og lagði fram lagabreytingu sem var samþykkt árið 2024, sem einmitt var hugsuð til að skerpa á þessu. Eitthvað af þeim umsóknum sem komu inn 2024 verða fyrir þessu nálarauga núna og það er ekkert óeðlilegt. Við erum að verja gríðarlega miklum peningum í þetta. Við eigum að fjárfesta í þessu. Þetta getur orðið stærsta útflutningsstoðin okkar á næstu árum. En það þýðir hins vegar ekki að þetta eigi að vera opinn krani. Það verður að setja m.a. skilyrði fyrir því að endurgreiðsla úr rannsóknum og þróun sé raunverulega rannsókn og þróun en séu ekki jafnvel rútínuverkefni — sem hefur alveg komið fyrir.
Ég undirstrika það aftur að við höfum verið að vinna í því að stoppa þennan hægagang sem hefur verið í afgreiðslu. Það er fyrst og fremst það sem hefur verið að og ég bendi á að endurgreiðslusjóðurinn er auðvitað ekki með loki og getur greitt meira en birtist í fjármálaáætlun ef umsóknir eru góðar.