fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Mig langar að þakka ráðherra kærlega fyrir framsöguna. Spurningar mínar í dag eru um verðmætasköpun og atvinnuuppbyggingu tengda málaflokknum. Mig langar að spyrja ráðherra aðeins nánar út í það en í fjármálaáætlun er gert ráð fyrir aukinni notkun mælaborða og árangursmælikvarða en þannig fæst skýrari sýn á markmið hvers málefnasviðs og tengingu milli fjárveitinga, aðgerða og ávinnings. Enn fremur styrkir þetta traust, gegnsæi og eftirlitshlutverk Alþingis með opinberum fjárfestingum. Getur ráðherra útlistað nánar hvernig þessi breytta áhersla nýtist á málefnasviði menningar, nýsköpunar og háskólamenntunar þar sem árangur opinberra fjárfestinga birtist oft í langtímaáhrifum, eins og með verðmætasköpun, atvinnuuppbyggingu, aukinni samkeppnishæfni og útflutningi, fremur en í skammtímaáhrifum?
Seinni spurningin er um að í fjármálaáætluninni er skýr áhersla lögð á að forgangsraða opinberu fjármagni til þeirra málaflokka sem skapa langtímaverðmæti, þar á meðal til nýsköpunar og skapandi greina eins og ráðherra fór yfir hér áðan. Getur ráðherra útlistað nánar hvernig hann hyggst tryggja að innan þess ramma sem fjármálaáætlun setur skili fjárfestingar ríkisins á þessu málefnasviði raunverulegum efnahagslegum ávinningi til samfélagsins í formi atvinnu- og verðmætasköpunar og skatttekna? Þetta voru spurningarnar mínar að þessu sinni.