fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Já, það er verið að ræða hérna í fyrri hluta spurningarinnar um tvær listgreinar sem auðvitað skipta ótrúlega miklu máli í sjálfu sér og fyrir sjálfsmynd okkar, eru oft spegill á samtímann og gagnrýni á stjórnvöld eða aðra hópa. Það sem er ótrúlega spennandi er að við báðar greinarnar starfa mjög fjölbreyttir hópar. Þetta hefur haft mikil áhrif á aðdráttarafl Íslands sem ferðaþjónustulands og þetta er grein sem dreifist mjög lífrænt um allt land, ekki eins og staðbundnar verksmiðjur eða sjókvíar. Þetta er mjög lífrænt og hefur skilað sér í blómlegu atvinnulífi mjög víða. Í því birtist kannski ekki síst fegurðin í greininni en getur þegar best lætur líka haft í för með sér ótrúlega miklar útflutningstekjur og án efa er þetta eitthvað sem við þurfum að styðja við áfram. Við höfum alveg verið að gera það myndarlega á síðasta ári. Þá greiddum við til stuðnings við kvikmyndagerð 8 milljarða og það er ekki lítið og allra síst í samanburði við aðrar listgreinar. Þetta er hins vegar dýr listgrein þannig að það verður að skoða í því ljósi.
Varðandi samstarfsáætlun okkar við útlönd eins og Horizon þá erum við einmitt að vinna að þátttöku í nýrri áætlun sem mun verða miklu viðameiri en sú sem nú er í gildi og mun mögulega kosta okkur meira fjármagn. Hún verður meira tengd varnar- og öryggismálum en hinar fyrri. En það hefur líka sýnt sig í öllum tölum sem við höfum aflað okkur að við erum að fá, eða fyrirtæki sem taka þátt í þessu, margfalt til baka það sem er verið að láta inn í þetta þannig að á endanum er mikill efnahagslegur ávinningur í því líka.