157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[21:39]
Horfa

Snorri Másson (M):

Frú forseti. Það er út af fyrir sig athyglisvert að hæstv. ráðherra hafi tekið þessa tillögu til alvarlegrar athugunar. Það er lofsvert að kanna allar hliðar máls. Hins vegar velti ég því fyrir mér hvort hæstv. ráðherra gæti útskýrt hvort það hafi verið einhverjar aðrar ástæður fyrir því að menn vilja ekki leyfa fólki að ráðstafa þessu sjálfu en bara sú að þetta sé kvikt umhverfi. Vegna þess að umhverfi einkarekinna fjölmiðla er nú þegar býsna ófyrirsjáanlegt og verður ófyrirsjáanlegra með hverju árinu. Það myndi náttúrlega bæta mjög stöðu einkarekinna miðla á Íslandi að hafa tekjur úr þessari átt sem þegar er verið að sækja til fólks og myndi sömuleiðis bæta aðhald við efnið í Ríkisútvarpinu og starfsemi Ríkisútvarpsins þannig að þetta væri mjög lýðræðisleg aðgerð gagnvart Ríkisútvarpinu líka eins og við höfum bent á. Þar fyrir utan held ég, þannig að ég nefni það líka, að umræðan sem fylgir svona plaggi og sömuleiðis almennt í þessari umræðu um fjölmiðlana og þessa meginstraumsfjölmiðla, ritstýrðu fjölmiðlana, að þeir séu mikilvægt akkeri á þessum tímum upplýsingaóreiðu, þá bendi ég á að ríkisvald og meginstraumsfjölmiðlar, þótt þeir heiti ritstýrðir fjölmiðlar, hafa nú í gegnum tíðina oft verið líka mikil uppspretta upplýsingaóreiðu eða einhvers konar bjögunar á veruleikanum. Ég held að það sé einföldun að líta svo á að sú bylting sem er að verða með því að hver og einn hafi frelsi til að tjá sig á sínum miðlum og vinna úr upplýsingum samtímans á sínum eigin miðlum og miðla þeim beint til annarra sé endilega mikil hættuþróun eins og oft er látið í veðri vaka í þessari umræðu. Að það sé vafasamt að ungt fólk nálgist upplýsingar á samfélagsmiðlum þegar ég tel að á samfélagsmiðlum hafi á undanförnum árum sömuleiðis, ef eitthvað er, orðið á sumum sviðum ákveðin frelsisbylting, að einstaklingurinn geti farið fram á sviðið og tjáð sig án tengingar við stærri aðila, hagsmunaöfl eða ritstýrða fjölmiðla. Ég tel að í þessu hafi falist ákveðin frelsisbylting og ég vil ekki tala þá ágætu þróun niður.