157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[21:44]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra í minni fyrri fyrirspurn hér út í nýsköpun, rannsóknir og þekkingargeira. Nú viðurkenni ég að ég er ekki í þeirri nefnd sem fjallar um þetta en er hins vegar í þeirri nefnd sem fjallar um fjármálaáætlun og þekking mín er pínulítið einskorðuð við þá bók sem hér um ræðir. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um þrjá hluti undir þessum lið: Hvernig miðar vinnunni varðandi stuðningskerfi rannsókna, þróunar og nýsköpunar? Það er talað um að hér eigi að endurskoða og gera í samfellu og koma upp þessari sameiginlegu sjóðagátt sem ég held að sé til mikilla bóta. Mig langar að vita hvernig sú vinna gangi. Sömuleiðis langar mig að forvitnast um endurskoðun á lögum um endurgreiðslukerfi kvikmyndagerðar. Þetta hefur verið rætt töluvert hér á síðustu árum og sitt sýnist hverjum en ég sé í fjármálaáætluninni að miðað við hana á fókusinn að vera sá að þetta nýtist íslenskri kvikmyndagerð sem best, sem ég fagna, ef hæstv. ráðherra gæti komið inn á það. Síðan er kannski spurning sem ég bara skil ekki eða mig myndi langa að fá aðeins nánari útskýringar á. Það er texti á blaðsíðu 129 um Nýsköpunarsjóðinn Kríu, en þar segir, með leyfi forseta:„Þá er mikilvægt að Nýsköpunarsjóðurinn Kría nýtist sem opinber stuðningur við fjárfestingu í sprotafyrirtækjum á fyrstu stigum, ekki síst á þeim sviðum nýsköpunar sem kalla á langt þróunartímabil. Í því skyni verður lögð áhersla á öfluga hagsmunagæslu Íslands gagnvart ESB og þátttöku í nýju tímabili samstarfsáætlana á sviði rannsókna og nýsköpunar.“

Hvernig kemur ESB inn í þetta, ef ég má spyrja hæstv. ráðherra, af hverju þarf öfluga hagsmunagæslu þar?