fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir fín svör. Bara þannig að ég taki af allan vafa hér þá er ég algerlega meðvitaður um gildi Kríu og það er bara mjög mikilvægt. Ástæðan fyrir því að ég spurði um kvikmyndirnar var einmitt út af því að við erum nýbúin að vera í þessum breytingum og hér stendur að það eigi að fara í frekari breytingar. Það var eiginlega það sem vakti áhuga minn. Mig langar að venda kvæði mínu í kross og fara í málefnasvið 19, fjölmiðlun. Þar er texti sem ég átta mig ekki alveg á og snýst um krónur og aura, virðulegur forseti. Það er verið að tala um helstu breytingar á fjármögnun málefnasviða, með leyfi forseta: „Lögbundið framlag hækkar útgjaldaramma málefnasviðsins um 900 m.kr. á tímabilinu“ — já, ég skil það — „og framlag til aðgerða í málefnum fjölmiðla er aukið varanlega um 500 m.kr.“ — ég skil það, þetta er 1,4 milljarður. Síðan kemur: „Á móti er gert ráð fyrir hagræðingu og niðurfellingu fjárheimilda.“ Ég skil það þá þannig að á móti þessum 1,4 milljarði verði skorið niður þannig að þetta nettist út í 0. Síðan segir: „Breyting fjárheimilda málefnasviðsins nemur því 1.142,5 m.kr. til hækkunar á tímabili fjármálaáætlunar.“
Ég skil þetta ekki alveg. Getur hæstv. ráðherra útskýrt þetta fyrir mér? Ég veit að klukkan er orðin margt en gæti hæstv. ráðherra skýrt þetta? Ég fæ þetta einhvern veginn ekki alveg til að ganga upp í höfðinu á mér en sennilega er einhver skýring á því en ég ætla að leyfa hæstv. ráðherra að fást við þetta reikningsdæmi.