157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[21:51]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Þetta er í sjálfu sér ekkert reikningsdæmi. Það var hagræðing á þennan málaflokk og þegar við lögðum svo til við ríkisstjórnina að ráðast í þessa aðgerðaáætlun, sem bættist þá við í rauninni það sem hækkar alltaf hjá RÚV, þá er þetta niðurstaðan. Það er fallið frá 200 millj. kr. hagræðingu. Mig langaði samt að koma aftur inn á varðandi Kríuna og hagsmunagæslu gagnvart ESB af því ég náði því ekki áðan. Það er mjög mikilvægt fyrir okkur sem tilheyrum Evrópska efnahagssvæðinu að við höfum aðgang að öllum rannsóknaráætlunum sambandsins og séum ekki skilin þar eftir, ekki síst núna þegar það liggur fyrir að verið er að breyta rannsóknaráætlunum, eins og ég kom inn á í öðru andsvari, og stækka þær allar og setja fókusinn kannski meira á önnur svið en hefur verið, að við pössum upp á okkar sjónarmið líka. Það er í rauninni bara það sem ég átti við.