fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Af því að hv. þingmaður nefndi fréttastofu Sýnar, sem er gríðarlega mikilvæg fyrir íslenska fjölmiðlun og hefur staðið sig ofboðslega vel, þá skiptir höfuðmáli að hún eða önnur stöð með þessa getu starfi áfram í samkeppni við Ríkisútvarpið. Þess vegna m.a. erum við að tvöfalda stuðninginn, almenna pottinn, til einkarekinna fjölmiðla og þess vegna erum við að búa til nýjan 300 milljóna pott fyrir þá fjölmiðla sem geta risið undir því að vera almannaþjónustufjölmiðlar og geta sinnt þeim skyldum sem undir það falla vegna þess að við höfum hreinlega ekki ráð á að gera eins og Norðmenn gerðu, að bjóða út aðra svoleiðis stöð og vera með tvær. Þess vegna erum við að gera þetta. Ef ég tryði því virkilega að það auglýsingafé sem yrði tekið af Ríkisútvarpinu myndi rata rakleiðis yfir á hina einkareknu fjölmiðla innan lands þá myndi ég gera það. En allar vísbendingar, allar tölur og allar kannanir sem við sjáum í kringum okkur sýna að svo er ekki. Þessir fjármunir rata í auknum mæli inn á samfélagsmiðla og til utanaðkomandi aðila. Þess vegna var það nú sem Sýn og fleiri tóku bara nokkuð vel í þessa aðgerðaáætlun sem eitt skref þó að eðlilega væru þau ekki sátt við allt og hefðu viljað sjá ýmislegt öðruvísi. Ég hef algjörlega fullvissu fyrir því að það er miklu réttara að fara þessa leið en leið hv. þingmanns vegna þess, eins og ég sagði áðan í fyrra andsvari: Ég vil styrkja einkarekna fjölmiðla án þess að veikja RÚV.