fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svarið. Ég er í raun og veru ósammála hverju einasta orði. Það er bara gott að vita að þetta með að auglýsingafé rati annað er orðin bara einhver mýta sem er sögð aftur og aftur. Ef við horfum á það hvernig auglýsingar virka, ef við tölum sérstaklega um netmiðla, að ef RÚV fer af auglýsingamarkaði þá dreifist auglýsingafé á fleiri fjölmiðla. Það segir sig sjálft. Að sjálfsögðu mun eitthvað rata á samfélagsmiðla en við verðum líka að gera okkur í hugarlund í hvaða heimi við búum. En um leið og það er meira til ráðstöfunar þá getur þú ráðið fleira starfsfólk, haft betri fjölmiðla, fengið þannig betri fréttir, meiri lestur, meiri dreifingu og þannig kaupir þú auglýsingar líka. Stórar sjónvarpsauglýsingar fara ekki úr landi af því að RÚV er að fara af markaði. Mér finnst þetta vera hlutur sem er búið að segja rosalega oft og hæstv. ráðherra segist ekki trúa því að þetta verði hér á landi. Ég alla vega trúi því og ég á enn þá eftir að sjá einhverjar alvöru rannsóknir á þessu og mér finnst áhugavert að hæstv. ráðherra hafi talað um vísbendingar en ekki einhverjar rannsóknir. Ég er alla vega algerlega ósammála þessu og við erum líka í sitthvorum flokknum á sitthvorum vængnum þannig að það kemur kannski ekkert sérstaklega á óvart. Rétt í lokin með þessi 12% auglýsingatekna RÚV þá eru náttúrlega allir fjölmiðlastyrkirnir ekkert nema plástrar og að sjálfsögðu er einkarekinn fjölmiðill eins og Sýn ánægður með að fá þó eitthvert aukafé. Mér finnst líka mjög merkilegt að allt í einu er Sýn orðin almannavarnafjölmiðill, sem hann er svo sannarlega, og í raun og veru er verið að segja að t.d. mbl og Sýn sinni jafn viðamiklu hlutverki og mögulega betra en RÚV, sem aftur skekkir þá einhvern veginn þessa heildarmynd alveg.
Nú vil ég fá svör frá ráðherra um þessi 12% sem eiga að renna til einkarekinna fjölmiðla og þessa samvinnu með RÚV. Það er verið að gera Ríkisútvarpið að einhvers konar lánastofnun eða hraðbanka fyrir einkarekna fjölmiðla og neyða einkarekna fjölmiðla (Forseti hringir.) til að koma á biðilsbuxunum að biðja um einhverja samvinnu. Hvernig fer saman hljóð og mynd í þessu ef einkarekinn fjölmiðill á að fara að grátbiðja Ríkisútvarpið um einhverja aðstoð í staðinn fyrir að aðskilja þetta og vera með mjög heilbrigða fjölmiðlaflóru í landinu? Ég botna ekki í þessu.