fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Þetta er auðvitað, eins og maður hefur sagt, viðamikill málaflokkur. Íslensk tunga er þarna undir og margir þættir sem þar spila inn í og gervigreindin er iðulega nefnd núna í sömu andrá og íslensk tunga, skiljanlega. Mikið af þeim upplýsingum sem við meltum frá degi til dags eru núna unnar af gervigreind og maður sér það á samfélagsmiðlum, maður sér það í fjölmiðlum að fólk freistast mjög til að skrifa og hreinlega birta efni sem er augljóslega unnið af gervigreind. Jafnvel fer það stundum fram hjá manni að svo sé, ekki að það sé endilega í eðli sínu verra fyrir þær sakir en oft jú, sannarlega og augljóslega verra og bagalegt að útvista hugsun sinni alfarið til gervigreindarinnar. En svoleiðis er það og svoleiðis mun það væntanlega halda áfram og þá skiptir máli að mínu mati að gervigreindin byggi á góðri íslenskri þekkingu og góðri, hreinni, fallegri íslenskri hugsun sem maður sér og finnur þegar maður opnar t.d. gamlar bækur sem eru skrifaðar jafnvel fyrir miðja síðustu öld. Þessi ferski andblær ómengaður af nútímanum, þessi tæra íslenska sem þá var rituð og skrifuð og sett á blað og er geymd inni á bókasöfnum en ekki inni í gervigreindarlíkönum nútímans. Og ef maður spyr um söguleg efni eru svörin iðulega ömurleg og augljóslega ekki byggð á bestu þekkingu, ekki byggð á íslenskri sagnfræði, íslenskri fræðimennsku, íslenskum bókmenntum, íslenskum bókum. Þær eru að megninu til ekki inni í gervigreindinni. Þetta er risavaxið vandamál sem verður að leysa hið snarasta. Þarna er vísað til í fjármálaáætluninni, sem ég fagna mjög, stafvæðingar menningararfsins. Það er mjög brýnt. Hvernig telur ráðherra að það sé fært að ná góðu samráði, hvort sem er við rithöfundana, Rithöfundasambandið, bókaútgefendur, bókasöfnin, þessar einingar allar í samfélaginu, til að virkilega koma til að byrja með öllum þessum bókum sem við vitum að eru t.d. dottnar úr höfundarrétti rakleiðis inn í gervigreindina? Vegna þess að það er framtíðin, alveg sama hvernig við ætlum að meta stöðu bókasafna og verja þau. Það er auðvitað framtíðin að þetta rati þangað inn. Hvernig látum við það gerast hið snarasta áður en gervigreindin tröllríður öllu án þess að vera sérstaklega klár og vel að sér í öllu sem rætt og ritað hefur verið á Íslandi?