fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Fyrst um flugþróunarsjóðinn. Þessi 100 millj. kr. aukafjárveiting í flugþróunarsjóð var tímabundin hækkun til eins árs sem samkvæmt þessu er verið að taka til baka eða rennur út. Ég get hins vegar alveg sagt hv. þingmanni að við erum að vinna töluvert með flugþróunarsjóði og erum mjög meðvituð um mikilvægi starfsemi þessa sjóðs fyrir þróun og framgang flugsamgangna á Norðurlandi og síðan vonandi ekki síður á Austurlandi eftir því sem vindur fram. Þannig að þetta er gríðarlega mikilvægt mál. Tengt þessu erum við að skoða mjög náið, og þess mun sjá stað í málum sem lögð verða fram í haust, utanumhald um ferðaþjónustuna í heild og þar tökum við þetta náttúrlega mjög sterkt inn. Það er markaðssetningin, það er utanumhald, það eru öryggismál, það er aðgangsstýringin og það er gjaldtaka af ferðaþjónustunni í heild sinni vegna þess að það er mín skoðun að við getum ekki lengur búið þessari atvinnugrein það umhverfi sem hún hefur búið við undanfarinn áratug eða svo, að það sé brotakennd gjaldtaka án heildstæðrar sýnar. Ég veit að það hefur verið smíðuð ferðamálastefna, hún var frágengin í tíð síðustu ríkisstjórnar. (BergÓ: … spurningin.) Spurningin er hvað ég sæi fyrir mér. (BergÓ: … að styrkja … sem ferðamannastað.) Ég er að telja upp þessi atriði sem ég er að vinna með og hafa áhrif á þessa ferðamannastaði. Það er ekki hægt að tína eitthvað eitt úr, hv. þingmaður veit það jafn vel og ég að maður tekur ekki eitthvað svona út. Það er ígrundað hvað liggur þarna að baki. Þessi áform um virðisaukaskattinn á baðlón, við erum að taka það með inn í stóru myndina, við erum að skoða áhrifin til og frá og að sama skapi erum við í vinnu með flugþróunarsjóði þannig að það er ómögulegt að tína svona út. Ég veit að hv. þingmaður vill fá út úr mér eitthvert ákveðið svar við þessu (Forseti hringir.) en ég get það ekki. En ég get fullvissað hv. þingmann um að við erum (Forseti hringir.) að skoða þetta í heild og við munum leggja fram mál sem lúta að heildstæðri uppbyggingu gjaldtöku sem og öðru á komandi hausti.