157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[22:55]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Herra forseti. Ég ætla nú bara rétt í upphafi að nefna, af því að ég veit að hv. þingmaður þekkir OECD vel, að það er einfaldlega þannig að orðræðan er sú að lægra þrep virðisaukaskatts telst vera skattstyrkur í þeirri merkingu, ekki bara á Íslandi heldur annars staðar. En ég skil svo sem vel pirring hv. þingmanns yfir þessu orðalagi sem ég er ekkert sérlega hrifin af heldur, en þannig er þetta nú. Auðvitað er það þannig, á þessum nótum, þegar horft er á virðisaukaskatt á ferðaþjónustu á milli landa þá hefur óvíða verið farin sú leið eins og hér að vera með alla ferðaþjónustuna í lægsta skattþrepi heldur hafa verið teknir út ákveðnir hlutir og gjarnan eðli málsins vegna þau fyrirtæki sem eru mest að umfangi og eru í hefðbundinni samkeppni, þau eru sett í efra skattþrep.

En svo ég svari spurningunni í stærra samhengi sem er ferðaþjónustan í heild sinni, þá, eins og ég kom inn á hér áðan, stendur núna yfir vinna í mínu ráðuneyti með hagaðilum í ferðaþjónustu við að kortleggja alla þætti þessarar mikilvægu atvinnugreinar. Eins og ég veit að hv. þingmaður þekkir þá var í ríkisstjórnartíð hans flokks slegið slöku við að byggja almennilegan ramma utan um þessa þjónustu og farin sú leið að koma með tilviljanakennda gjaldtöku hingað og þangað, nú síðast bara á skemmtiferðaskipin um síðustu áramót o.s.frv. og við getum farið lengra aftur. Þetta er auðvitað ekki gott fyrir atvinnugreinina og þess vegna erum við í þeirri vinnu að halda utan um þetta og koma með heildstæðan ramma sem lýtur að markaðssetningu, hvernig við ætlum að vera með hana, langtímasýn, hvernig gjaldtökunni verður háttað, að einfalda hana, búa til ramma um aðgengi og öryggi o.s.frv. Allt er þetta liður í því og þetta verður skoðað í þeirri vinnu.