fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég þakka ráðherra fyrir sína framsögu. Ráðherra er að gera ýmislegt jákvætt. Mér fannst nú samt svolítið sérstakt að ráðherrann þuldi hér upp fjármuni til aukningar því að þegar maður skoðar stóra plaggið hér á bls. 6 og 7, útgjaldaramma málefnasviða næstu fimm árin, þá virðist ráðherrann hafa dregið stutta stráið. Heilbrigðiskerfið er að aukast í heild sinni um 50 milljarða, þar af um 25 til hjúkrunarrýma, sem þó vantar 16 milljarða eins og kom fram í ræðu fyrr í dag. Mér sýnist að málefni aldraðra hækki um 18 milljarða og öryrkja um 7,5 á meðan framhaldsskólastigið t.d. lækkar um 4 og málefni hæstv. ráðherra lækka um 9 milljarða á þessu tímabili. Fyrsta spurningin er, af því að hér var rætt um fangelsismálin áðan: Er brottfararstöð komin inn í fjármálaáætlun og fyrirhuguð uppbygging þar?
Ef við förum yfir í almanna- og réttaröryggi og skoðum löggæsluna og Landhelgisgæsluna þá vitum við að það þarf að byggja þar upp á ýmsan hátt, það er í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og við erum sammála um það, bæði löggæsluna og Landhelgisgæsluna. Við sjáum reikninginn árið 2024, sem var fyrir löggæsluna 34 milljarðar en fjárlögin í ár eru 5,5 milljörðum lægri og við vitum ekki hvernig árið 2025 endaði og Landhelgisgæslan er með lægri tölu, um 3 milljörðum lægri tölu en reikningurinn 2024. Við vitum núna, og ég veit að ráðherrann veit það, að það er áskorun að einstaka stofnanir séu reknar með tapi. Það vantar verulegt fé, t.d. á löggæslusviðið. Ég hef þekkingu á því að í kjördæminu bæði á Suðurlandi og Suðurnesjum skortir verulegt fé nú þegar, hvað þá að taka við aukningunni. (Forseti hringir.) Mig langar að spyrja ráðherrann: Hvernig samrýmist þessi mynd sem birtist hér í fjármálaáætlun því sem ráðherrann vill auðvitað gera, þ.e. að byggja upp?