157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[17:43]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Þegar þessi ríkisstjórn fór af stað settum við af stað ráðherranefnd um öryggis- og varnarmál. Tilgangurinn var ekki síst að ráðuneytin ynnu saman að þessu verkefni því það er auðvitað þannig að þau hríslast um ólík ráðuneyti. Þegar við tölum um fjarskipti eins og áðan er það í einhverju samhengi hlutanna líka málaflokkur sem heyrir undir innviðaráðuneyti. Ég er, og við ráðherrarnir, í samskiptum um það og eins og ég nefndi áðan er í gangi vinna við að kortleggja hvað þarna gæti fallið undir. Ég sé t.d. vinnu, af því að nú situr hér í salnum hv. þm. Grímur Grímsson sem fer fyrir þeirri vinnu í dómsmálaráðuneytinu, um að skoða skipulag lögreglu og áætlun til næstu ára í þeim efnum. Það er ákveðið svar. Við erum auðvitað með tölur og greiningar um það sem við höfum haft frumkvæði að að vinna, um það hver þörfin er hjá sérsveitinni, hvert hlutverk almannavarna er, hvernig við viljum sjá greiningarstarf eflast. Við erum að skoða útgjöld sem efla áfallaþol og öryggi sem nýtast jafnt í borgaralegum sem hernaðarlegum tilgangi. Mér fannst líka atriði, eins og kom fram í umræðunni í gær, að við erum ekki að telja frá núllpunkti. Við erum þá þegar með tölur um það sem segja okkur að við séum í einhverjum 0,9% eða 0,8% eða hvað það nú var af þessum 1,5% og þetta 1,5% viðmið nær til hins opinbera í heild sinni, til ríkis, til sveitarfélaga, til opinberra fyrirtækja í þeirra eigu. Þannig að það leiðir af sjálfu sér að eitt ráðuneyti getur ekki og ætlar sér ekki að kortleggja þetta eitt síns liðs.