fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Þessi fjármálaáætlun markar tímamót; loksins hallalaus fjárlög, í fyrsta skipti í hartnær áratug. Ný fjármálaáætlun kveður á um að ríkið verði rekið með afgangi á hverju einasta ári áætlunarinnar. Þannig hættum við loksins að reka ríkið á yfirdrætti, sem er það áhrifaríkasta sem ríkið getur gert til að stuðla að stöðugleika til lengri tíma. Þetta er staðreynd. Það ætti enginn að gera lítið úr þessu, enginn, þvert á móti. Þetta er stór stund og fagnaðarefni fyrir okkur öll, hvar sem við erum í flokki.
Við erum að laga ríkisfjármálin og hvikum hvergi frá þeirri stefnu. Að baki því eru stórar ákvarðanir og þetta er rauða línan hjá okkur í ríkisstjórninni, það sem við sögðumst ætla að gera og það sem við erum að gera. Þetta er gert með áframhaldandi tiltekt í ríkisfjármálum og tekjuaðgerðum sem hlífa heimilum. Hagræðing gengur eftir en við bætum í þar sem upp á vantar, m.a. með 1% fækkun á ríkisstarfsmönnum sem eru ekki í framlínu. Sameiningar ganga eftir og það stefnir í 15% fækkun ríkisstofnana á kjörtímabilinu. Þar af er búið að lögfesta 5% fækkun nú þegar. Það er mikilvægt að taka fram að fjárfesting ríkisins verður áfram öflug, um 2% af vergri landsframleiðslu. Því til viðbótar verður fjárfesting nýs innviðafélags samkvæmt frumvarpi sem liggur nú fyrir Alþingi. Það á að hefja á ný stórframkvæmdir í samgöngum á Íslandi og mikil þörf er þar á, þannig að hagræðingin mun ekki koma niður á fjárfestingu í landinu.
Tekjuaðgerðir eru á pari við tekjuaðgerðir í fjármálaáætlunum fyrri ára en nú er lögð áhersla á að farið sé í tekjuaðgerðir sem hlífa heimilunum. Þar má nefna minni hækkun á gjaldtöku af ökutækjum en gert hefur verið ráð fyrir í öllum fjármálaáætlunum fyrri ára. Það er 3,5 milljörðum kr. minni hækkun í þessari áætlun á árinu 2027 en samkvæmt fyrri áætlun og áætlunum fyrri ríkisstjórnar. Dregin verður til baka að hluta skattalækkun á fjármálafyrirtæki. Í því samhengi má geta þess að bankar skiluðu 94 milljarða kr. hagnaði á síðasta ári en lækkun bankaskatts virðist ekki hafa skilað sér í lægri vöxtum í þeim mæli sem vonast var til þegar skatturinn var lækkaður fyrir fáeinum árum. Þá höldum við áfram að fækka sérstökum undanþágum og glufum í skattkerfinu til að tryggja að jafnræðis sé þar gætt, t.d. á milli mismunandi atvinnugreina eða fyrirtækja.
Vegna markmiðs um hallalaus fjárlög er haldið aftur af nýjum útgjöldum ríkisins en áhersla lögð á í fyrsta lagi ný framlög til velferðarmála og þar má t.d. nefna heilbrigðismál. Þar erum við að tala um rekstur nýrrar matsdeildar bráðamóttöku Landspítala, styrkingu á sérnámi í heimilislækningum og fleiri sérgreinum og framlag til að vinna niður biðlista, málefni barna, það er sérstaklega BOFS og framlenging á úrræðum vegna ofbeldis, t.d. til inngildingar og fyrir börn í viðkvæmri stöðu.
Í öðru lagi er um að ræða viðbótarframlög sem styðja við atvinnustefnu og menntamál, t.d. styrkingu háskólastigs og STEM-greina þar sem framlög verða síðan gerð varanleg í máltækni- og gervigreindaráætlun. Nemendafjölgun í framhaldsskólum er fjármögnuð. Efling íslenskukennslu fyrir innflytjendur er styrkt og kennsluefni í íslensku. Einnig er vert að minnast á árleg fjárframlög sem voru aukin í fjármálaáætlun síðasta árs sem viðhalda sér auðvitað, svo sem vegna viðhalds vega, löggæslu, heilbrigðismála og uppbyggingar hjúkrunarheimila, svo fátt eitt sé nefnt.
Forseti. Ég hef heyrt það á málflutningi þingmanna í stjórnarandstöðu að þeir hefðu margir viljað gera meira og betur. Það má alltaf gera betur en þessi fjármálaáætlun markar tímamót á sérlega jákvæðan hátt fyrir okkur öll sem ætti að vera fagnaðarefni þvert á flokka. Á fyrsta ári nýrrar ríkisstjórnar hefur þegar tekist að lækka skuldir ríkisins um 7,5% af vergri landsframleiðslu, helminga halla á fjárlögum ríkisins úr 60 í 25 milljarða og þá hafa tvö stór alþjóðleg matsfyrirtæki uppfært mat sitt á lánshæfi ríkisins í svokallaða A+-einkunn. Vextir hafa lækkað um 1,75% þrátt fyrir tímabundið bakslag og því höfum við gripið til sértækra aðgerða, m.a. til að bregðast við olíuverðshækkunum á heimsmarkaði. Til lengri tíma litið er ljóst að við erum á réttri leið en árangur næst ekki alltaf í einu skrefi og það er mikilvægt að halda plani. Ég fagna þessari fjármálaáætlun og ítreka mikilvægi áframhaldandi festu við stjórn ríkisfjármála.