157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[17:56]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Hæstv. forsætisráðherra vill stilla þessari fjármálaáætlun upp sem áætlun um ábyrgð, festu og árangur. En fólkið í landinu finnur ekki fyrir neinu af þessu. Fólk lifir í veruleikanum og veruleikinn er sá að verðbólgan er enn langt yfir markmiði, stýrivextir fara hækkandi og heimilin í landinu finna fyrir því í hverjum einasta mánuði. Það er þess vegna sem þessi ræða hæstv. forsætisráðherra var bara enn eitt innleggið í sýndarstjórnmál ríkisstjórnarinnar. Hvernig er hægt að tala um árangur í því efnahagsumhverfi sem þessi ríkisstjórn hefur búið til? Ríkisstjórn sem segist vera í tiltekt eftir efnahagsstjórn sem tók á falli WOW air, heimsfaraldri og eldsumbrotum í Grindavík þegar núverandi ríkisstjórnarflokkar vildu meira fé út úr ríkissjóði.

Hvað er það nákvæmlega í stefnu hæstv. forsætisráðherra sem hefur létt undir með heimilunum? Því að þegar maður skoðar þessa fjármálaáætlun sér maður að ríkisstjórnin ætlar ekki að ná tökum á stöðunni með raunverulegu aðhaldi í ríkisrekstri. Hún ætlar að gera það á tekjuhliðinni; með öðrum orðum, með því að taka meira af heimilunum og atvinnulífinu. Það er ekki leið út úr verðbólgu og hávaxtavanda. Engin þjóð hefur skattlagt sig út úr efnahagsvanda. Og svo er hitt: Þessi mikli viðsnúningur sem forsætisráðherra talar um endar í afgangi upp á rúman 1 milljarð kr. Í ríkisrekstri af þessari stærðargráðu er það nánast ekki neitt. Það þýðir einfaldlega að það má ekkert út af bregða.

Við Sjálfstæðismenn segjum að það sé kominn tími á aðra leið. Leið sem léttir byrðarnar, eykur ráðstöfunartekjur heimilanna, styrkir atvinnulífið og lækkar skuldabyrði ríkisins. Leið þar sem ríkið gerir minna en betur. Leið þar sem stjórnvöld sýna aga í eigin rekstri í stað þess að senda reikninginn áfram á fólkið í landinu. Það er hinn raunverulegi valkostur, ekki orðaflaumur frá ríkisstjórninni um ábyrgð heldur ábyrgð í verki.