157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[18:15]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Það er óþarfi að láta mig vita ef klukkan virkar ekki. Ég geri aldrei ráð fyrir að þessi klukka virki. En ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir að taka hér þátt í umræðunni og vona að það verði upplýsandi því ekki veitir af verður að segjast eins og er að planið hefur ekki gengið vel. Planið sem reyndar kom á daginn að er fyrst og fremst markmið en þetta lítur ekki vel út. Atvinnuleysistölur, verðbólga, vextir, allt það helsta sem þessi ríkisstjórn ætlaði að einbeita sér að, það bara gengur ekki upp enn sem komið er og það er erfitt að sjá að þessi fjármálaáætlun breyti því.

Vísað hefur verið í umsögn fjármálaráðs sem er óneitanlega sláandi og ég hlýt að spyrja hæstv. forsætisráðherra: Tekur hann ekkert mark á athugasemdum gagnrýni fjármálaráðs eða gerir hann það? Hefur hann þá engar áhyggjur af því sem þar kemur fram? Eitt af því sem nefnt er er með hvaða hætti ríkisstjórnin hyggst tefla á tæpasta vað, svo ekki sé fastar að orði kveðið, í ríkisrekstrinum á næsta ári og þar má ekkert út af bera. 1 milljarður í afgang, 0,06% af tekjum ríkisins. Ég hlýt að spyrja, herra forseti: Hvers vegna var ekki gert ráð fyrir, þó ekki væri nema dálitla svigrúmi? Eftir gegndarlausa útgjaldaaukningu liðinna ára þá hefði verið hægt að skera verulega niður, spara verulega og ná almennilegum afgangi. En hvers vegna að miða við 1 milljarð sem er farinn út um gluggann við minnstu atburði? Til að mynda ef menn álpast inn í aðlögunarviðræður við Evrópusambandið er stjórnin lent öfugu megin við núllið.