fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Hér er aðeins farið yfir efnahagsmálin og stöðu mála. Atvinnuleysi er í kringum 4,8%. Já, það hefur aukist aðeins en við erum líka á því tímabili árs þar sem er oft aðeins hærra atvinnuleysi. Þetta er ekki langt frá náttúrulegu og eðlilegu atvinnuleysi á Íslandi þó að það séu vissulega breyttar prósentutölur þarna. Við erum líka að koma út úr tímabili þar sem var mikil þensla og við vitum að þegar atvinnuleysi mælist nær ekkert getur það líka valdið ákveðnum vandkvæðum. Þetta er auðvitað hið sífellda einstigi sem þarf að feta við yfirstjórn efnahagsmála. Við sjáum t.d. mjög tvískiptan atvinnumarkað. Það er nær ekkert atvinnuleysi meðal íslenskra ríkisborgara á meðan það er hátt í 10% á meðal erlendra ríkisborgara. Það er auðvitað að hluta til vegna þess að það hefur kannski verið sveiflujafnandi endi markaðarins, þótt mér leiðist að orða það með þeim hætti. Þetta hafi kannski verið aðilar sem komu inn þegar það var uppsveifla og síðan eru þeir þeir fyrstu sem missa vinnuna þegar hægist á. Og það er vissulega að hægjast á enda vorum við í rosalegum hagvexti, 0% hagvexti á mann, sem þýddi mikla aukningu á þjónustuþörf. Við erum líka að sjá, vegna þess að það hefur hægst á þessari fólksfjölgun, að húsnæðismarkaðurinn hefur kólnað. Raunverð húsnæðis hefur lækkað núna að undanförnu þannig að það er ákveðin dýnamík sem er að breytast núna. Það er ekki hægt að fá lægra húsnæðisverð og dempun á ákveðnum markaði án þess að það hafi áhrif á aðrar stærðir.
Varðandi afkomuna. Hér er talað um að tefla á tæpasta vað. Ég held að við viljum öll sjá afkomuna aðeins betri og það er ekki loku fyrir það skotið að fjárlög verði lögð fram þar sem verður aðeins meira rými til staðar. Ég legg hins vegar áherslu á að það er varasjóður sem fylgir líka fjárlögunum sem er gert ráð fyrir í þessari áætlun. Það er ekki búið að eyða eða eyrnamerkja öll þessi útgjöld og við erum að koma okkur yfir núllið. Það gerist ekki á einni nóttu. En við megum heldur ekki skera við nögl þegar kemur að fjárfestingu í innviðum og öðru vegna þess að það getur líka bitnað á hagvexti og þar með afkomubata til lengri tíma.