fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir sína ræðu. Stærsta málið sem er í gangi hjá hæstv. ráðherra þessa dagana (Forseti hringir.) er samgönguáætlun og síðan samspilið við fjármálaáætlun sem við ræðum hér. Einnig erum við að ræða hér í þinginu um stofnun innviðafélags. Það hefur verið lengi síðan þessi ríkisstjórn tók við talað mikið um það hvað þetta sé allt fullfjármagnað og þar á meðal að samgönguáætlun sé fullfjármögnuð. Við mörg sem sitjum hér á þingi og kannski sérstaklega í fjárlaganefnd þar sem umfjöllun um innviðafélagið er hafin og erum að fara í gegnum það frumvarp, þar er kannski flestum ljóst sem þar sitja að það er töluvert í land hvernig eigi að klára málefni innviðafélagsins og síðan aftur fjármögnun þeirra samgöngumannvirkja sem verið er að tala um að fara í fjármögnun á, í gegnum innviðafélagið sem tengist aftur samgönguáætluninni. Innviðafélagið er stofnað í kringum þrjár framkvæmdir, Sundabraut, Ölfusárbrú og Fljótagöng. Það er svona fyrsta hugmynd, 190 milljarða framkvæmd. Mér sýnist töluverð vinna eiga eftir að fara fram um hvernig eigi að standa að innviðafélaginu, hverjir eigi að koma inn í það og fjármagna þessar innviðaframkvæmdir, samgöngumannvirki sem eru þar. Síðan er hugmyndin að fara með fleiri framkvæmdir inn í innviðafélagið.
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra varðandi samgönguáætlunina: Er ekki orðið nokkuð ljóst að hún verði ekki samþykkt á þessu þingi miðað við þær forsendur og hvað innviðafélagsumræðan er komin stutt, sú fjármögnun sem þar er? Er það ekki bara staða máls? Hvaða væntingar hefur ráðherrann um hvernig staðið verður að samgönguáætlun miðað við þá stöðu sem er varðandi innviðafélagið? Málið er rétt komið í fjárlaganefnd (Forseti hringir.) og hefst núna vinna við það. Þetta er stórt mál sem er mikilvægt að fá fram eins og með samgönguáætlun og þær framkvæmdir sem tengjast henni á þessu ári og næstu árin.