fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Varðandi umsögn fjármálaráðs, og ég ber mikla virðingu fyrir því ráði og þeim sem þar sitja, þá verð ég samt að segja að ég get ekki séð hvernig hægt er að meta áhættu og heildarskuldbindingar félagsins áður en það er stofnað. Það get ég ekki séð hvernig á að gera. Og ég get ekki séð, um leið og lögin eru samþykkt, hvernig eigi að gera það eftir það. Það verður að meta í hverju einasta verkefni sem félagið fær. Það verður gert með samningum. Þá verður áhættan metin og skuldbindingar ríkissjóðs og skuldbindingar félagsins. Líka hvort það sé mögulegt, þetta geti orðið verkefni sem félagið getur tekið að sér fjárhagslega. Það er það sem þetta snýst allt um. Það verður að meta í hverju einasta verkefni fyrir sig. Mér skilst líka að lífeyrissjóðirnir vilji helst fjármagna og skoða hvert einasta verkefni sjálfstætt. Ég á von á því að Fljótagöng verði með sérfélag en svo geti sjálfbærari verkefni eins og Sundabraut verið inni í félaginu sjálfu. Þá er það metið sem slíkt, hvert og eitt verkefni, hversu mikil áhrifin eru.
Varðandi farnetsþjónustuna og hvort þetta sé viðskiptaleg ákvörðun, þá verður lokið ljósleiðaratvítengingu alls þéttbýlis og verulegum úrbótum á farneti á tengivegum ásamt uppbyggingu farnets gagnvart öllum stofnvegum á láglendi á kjörtímabilinu. 2G og 3G eru á forræði fjarskiptafyrirtækjanna og Fjarskiptastofa fylgist með og samhæfir þetta. Það er núna komið símanúmer, sem er 1280, þar sem einstaklingar geta tékkað á því hvort þeir séu tengdir eða ekki. Við erum á breytingatíma, við erum að koma með hitt kerfið, fyrirtækin eru að koma með hitt kerfið inn. Það verður líka að sýna svolitla biðlund hvað þetta varðar. Þetta mun taka tíma en það er bara þannig.
Varðandi niðurskurð á landsbyggðinni þá munum við beita okkur fyrir því að hægt verði að standa vörð um almenningssamgöngur á landsbyggðinni. Ef framlög verða óbreytt er ljóst að horfa verður á verkefnið í heild. (Forseti hringir.) Viðbrögð verða metin með það fyrir augum að þjónustustig verði á sama stigi eins og hægt er. (Forseti hringir.) Ég get t.d. upplýst það að Vegagerðin er á lokametrunum með að semja við Icelandair og við vonumst til að samningar náist. Við skulum sjá til.