157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[20:04]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Varðandi höfuðborgarsáttmálann er það samningur milli ríkisins og sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Ég var spurður að því á Vestfjörðum á fundi Innviðafélags Vestfjarða hvort ég væri hlynntur samgöngusáttmála Vestfjarða. Ég sagði nei, ég væri ekki hlynntur því. Ég tel hins vegar að rökin fyrir því að hafa samgöngusáttmála á höfuðborgarsvæðinu séu þéttriðið net sveitarfélagavega og stofnvega í þéttbýli sem Vegagerðin sér um. Þessi sáttmáli er að erlendri fyrirmynd. Og vissulega er það rétt að ástæðan fyrir því að ég sagði að ég væri ekki hlynntur því að það væru gerðir svona sáttmálar úti á landi er vegna þess að þar leggur ríkið vegi í hinum dreifðu byggðum landsins og málið er búið. Það er miklu einfaldara. Þar er aðkoma þingsins að sjálfsögðu tryggð. Aðkoma þingsins kemur náttúrlega í gegnum fjárveitingavaldið o.s.frv. (IngD: Nei. Engin aðkoma. )Já, ég dreg þessi ummæli til baka, fyrirgefið. En það er rétt að Alþingi samþykkir framlög til höfuðborgarsáttmálans á hverju ári í fjárlögum. Það er gert. (Gripið fram í: Við komum ekkert að ákvörðunum …) Þú ættir að þekkja það. Þetta var gert í þinni ríkisstjórn. Svo ég haldi hérna áfram varðandi höfuðborgarsáttmálann þá er þetta endurskoðunarákvæði gríðarlega mikilvægt. Það eru greiðslur sem verða endurskoðaðar og það er áskorun fram undan varðandi fjármögnun. Við munum í næstu fjármálaáætlun sjá hvernig við nálgumst þetta verkefni og flýti- og umferðargjöld verða einungis lögð á að undangengnu samþykki Alþingis á frumvarpi fjármálaráðherra, þannig verður þetta gert. Það stendur í höfuðborgarsáttmálanum að það eigi að leggja fram hvað varðar fjármögnun frá næsta tímabili samgönguáætlunar eftir 2030 — þá verði það gert með flýti- og umferðargjöldum eða með öðrum hætti. Boltinn er hjá fjármálaráðuneytinu hvað þetta varðar. Það er ekkert að finna um flýtigjald í þessari fjármálaáætlun. (Forseti hringir.) Þetta er vissulega áskorun fram í tímann þegar þar að kemur. Fjárfestingin skilar sér margfalt til baka í mörgum þessara framkvæmda (Forseti hringir.) sem eiga sér stað á höfuðborgarsvæðinu. Við gætum notað allt kvöldið til að ræða þetta mál.