157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[20:07]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Það er mér sönn ánægja að gera grein fyrir þeim málefnum og verkefnum sem heyra undir félags- og húsnæðismálaráðuneytið. Í fjármálaáætlun 2027–2031 er verkefnið að verja velferðarkerfið og bæta lífskjör almennings í landinu jafnhliða hallalausum fjárlögum. Á forræði ráðuneytisins sem ég fer fyrir eru verkefni í 19 málaflokkum með útgjaldaramma upp á 400 milljarða á ári, að stærstum hluta, eða ríflega 340 milljarðar, eru það framfærslugreiðslur eins og greiðslur almannatrygginga vegna skertrar starfsgetu og ellilífeyris, atvinnuleysisbætur og greiðslur í fæðingarorlofi. Húsnæðismálin eru stærsta hagsmunamál fjölskyldna og almennings í þessu landi. Þau hafa verið einn helsti drifkraftur verðbólgu og þar af leiðandi hárra vaxta síðustu ára og áratuga. Við þurfum að byggja meira til að ná jafnvægi til lengri tíma á húsnæðismarkaði. Það er langstærsta kjaramál samtímans. Í fyrsta húsnæðispakkanum kynntum við ýmsar aðgerðir til að liðka fyrir íbúðauppbyggingu og draga úr hvötum til að safna íbúðum. Það er liður í öðrum húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar að við munum ganga á undan með góðu fordæmi til að auka lóðaframboð með landi í eigu ríkisins og ýta undir umbreytingu á atvinnuhúsnæði yfir í íbúðir. Ríkisstjórnin setur sömuleiðis heimili fólks í forgang með aðgerðum fyrir efnaminni fjölskyldur. Við höfum lagt fram frumvarp um hækkun stofnframlaga ríkisins til að fjármagna almennar íbúðir fyrir tekju- og eignaminni leigjendur, enda hefur það sýnt sig að almenna íbúðakerfið er eitt okkar besta verkfæri til að auka húsnæðisöryggi leigjenda. Þar er leiga allt að 40% lægri en á almennum leigumarkaði.

Á komandi vikum munum við einnig ráðast í aðgerðir til að bæta leigumarkaðinn í heild sinni og styrkja stöðu leigjenda. Ríkisstjórnin mun einnig vinna áfram að aðgerðum sem hafa það að markmiði að jafna leikinn og auðvelda fólki að komast inn á húsnæðismarkaðinn. Við höfum þegar ráðist í viðamiklar breytingar á hlutdeildarlánakerfinu fyrir fyrstu kaupendur, sem hafa þegar sannað sig, og vinnum að endurbótum á húsnæðislánakerfinu. Markmiðið með öllum þessum aðgerðum er skýrt, þ.e. að auka húsnæðisöryggi okkar allra og koma á sanngjörnum húsnæðismarkaði og síðast en ekki síst að auka fyrirsjáanleika. Þessu tengt má benda á að fyrsti uppbyggingarsamningur inn í hlutdeildarlánakerfið eftir breytingar, um 400 íbúða uppbyggingu í Hafnarfirði, var gerður í byrjun árs. Kjör þeirra sem fá greiðslur úr almannatryggingum hafa verið bætt og höldum við áfram þeirri vegferð. Við erum komin áleiðis með hækkun almenns frítekjumarks ellilífeyrisþega og í fjármálaáætlun eru tryggðir 4 milljarðar á næstu tveimur árum til að halda áfram með það verkefni, en gert er ráð fyrir að hið almenna frítekjumark ellilífeyrisþega verði komið yfir 60.000 kr. á mánuði á árinu 2028. Þá var tryggð eingreiðsla í desember til tekjulægstu hópa lífeyrisþega á næsta ári með 2 milljarða framlagi og 300 milljóna varanlegri viðbót vegna hinnar árlegu orlofs- og desemberuppbótar lífeyrisþega sem verður samræmd milli bótaflokka lífeyris. Áhersla á að fullreyna endurhæfingu áður en fólk fær varanlegt örorkumat hefur aukið greiðslur vegna endurhæfingar undanfarin ár og er gert ráð fyrir að sú aukning sem verið hefur fari brátt að dragast saman. Um 100 milljónir bætast við vinnusamninga og vinnumarkaðsaðgerðir vegna fólks með skerta starfsgetu og er framlagið þá komið upp í um 750 milljónir á ári til að efla þátttöku á vinnumarkaði. Áfram verður unnið í samstarfi við hagaðila um snemmtæka íhlutun þannig að auka megi árangur af endurhæfingu.

Ríkisstjórnin heldur áfram að styrkja afkomuöryggi fólks í fæðingarorlofi og bætir við hátt í 4 milljörðum til að hækka tekjuþak í fæðingarorlofi í samræmi við kjarasamninga. Aðkallandi er að gera úrbætur í málefnum einstaklinga sem dæmdir hafa verið til öryggisvistunar. Þjónusta við þennan hóp hefur hingað til verið ómarkviss og brotakennd og skortur hefur verið á sérhæfðum búsetuúrræðum. Við stefnum á að byggt verði húsnæði sem hýsi nýja miðstöð um öryggisráðstafanir og samhliða aukast rekstrarframlög um 1,2 milljarða króna árlega frá því sem nú er og verður rekstrarfé þá orðið 3,8 milljarðar á ári.

Virðulegi forseti. Ég hef nú farið yfir helstu atriði í fjármálaáætlun sem varða mína málaflokka og vænti farsæls samstarfs við þingheim um þessar breytingar.