157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[20:15]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góðar spurningar. Ef við byrjum á séreignarstefnunni og síðan uppbyggingu á óhagnaðardrifnu húsnæði í gegnum almenna íbúðakerfið þá er það svo að ástæðan fyrir því að framlög til stofnframlaga eru að lækka er fyrst og fremst tvíþætt. Stofnframlögin hafa einfaldlega ekki verið að ganga út og helsta skýringin á því er í raun verkefnastaða þeirra félaga sem hafa verið að byggja inn í almenna íbúðakerfið. Einnig var hluti af kjarasamningum 2024 sérstakt aukið framlag til stofnframlaga eða 2 milljarðar sem fellur niður. Þetta eru tvær helstu skýringarnar. Ég get hins vegar glatt hv. þingmann með því að til stendur að bæta í þennan málaflokk, stofnframlögin, ef þurfa þykir á næstu árum. Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði losna 2028 og ef þörf er á að bæta í stofnframlögin í kringum væntanlega kjarasamninga þá munum við auðvitað gera það. En fyrst og fremst er ástæðan fyrir þessu sú að það er lóðaskortur hjá þeim félögum sem hafa verið að byggja, þ.e. þessi lækkun er til komin vegna þess að framlögin hafa ekki gengið út.

Varðandi séreignarstefnuna þá er rétt að við höfum verið að leggja áherslu á hlutdeildarlánin. Bæði höfum við gert í fyrsta skipti beina samninga við uppbyggingaraðila eins og í Hafnarfirði. Þar er verið að byggja um 400 íbúðir, ekki allar inn í kerfið en stór hluti þeirra. Sömuleiðis hafa þessar breytingar verið mikil innspýting inn í hlutdeildarlánakerfið og miklu fleiri sem nýta sér þetta. Við erum að úthluta oftar á ári þannig að það er svo sem alveg rétt að við erum líka að leggja meiri áherslu á séreignarstefnuhlutann.