157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[20:19]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Varðandi stofnframlögin þá er ástæðan fyrir því að þau eru með þessum hætti í fjármálaáætlun fyrst og fremst sú að þau hafa ekki gengið út sem skyldi. Fyrir því eru ástæður sem ég rakti hér áðan. Það er í sjálfu sér ómögulegt að segja til um þetta. Ef okkur tekst að stórauka lóðaframboð, sem verið er að vinna í, og það kemst einhver kraftur í uppbyggingu inn í almenna íbúðakerfið munum við að sjálfsögðu endurskoða framlögin þar. Einnig liggja fyrir þinginu breytingar á stofnframlagakerfinu, eða lögum um almennar íbúðir, þar sem við erum að hækka stofnframlög um 5%. Þau fara þá úr 30% í 35%. Það er gert til að liðka fyrir, bæði sökum þess að fjármagnskostnaður hefur auðvitað rokið upp úr öllu valdi, út af mjög háu vaxtastigi, og byggingarkostnaður hefur sömuleiðis hækkað. Varðandi lækkun vasks á verkstað þá tek ég undir það með hv. þingmanni að það úrræði gafst mjög vel. Ég lít þannig á að þetta sé ekki alveg meitlað í stein. Þetta er viðrað í fjármálaáætlun og á eftir að útfæra betur. En ég tek undir það með hv. þingmanni að þetta er úrræði sem gafst mjög vel. Hækkun stofnframlaga mun hins vegar hjálpa enn frekar til hjá þeim félögum sem hafa verið að byggja hagkvæmt. Vonandi verður það nægjanleg innspýting til þess að stofnframlögin gangi síðan út og aukist líka ár frá ári, sem er auðvitað markmiðið. Þó að það komi ekki fram í áætluninni 2029–2031 þá vonast ég til þess.