157. löggjafarþing — 95. fundur,  16. apr. 2026.

svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.

[11:14]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Frú forseti. Þetta er auðvitað mjög áhugaverð umræða. Mig langar bara að árétta það sem ég sagði áðan vegna orða sem hér hafa fallið. Forsætisráðherra er spurður um Evrópusambandið og sagt að það séu einhverjar blekkingar í gangi. Það er verið að tala um hvort umsóknin sé virk eða ekki. Það liggur auðvitað alveg fyrir, og það var farið yfir það hér í óundirbúnum fyrirspurnatíma, að þegar þingið samþykkir eitthvað þá getur framkvæmdarvaldið auðvitað ekki núllað það út með tölvupósti eða skeytasendingum. Við hljótum öll í þingræðissamfélagi að bera meiri virðingu fyrir þinginu heldur en svo. Þó að menn séu ósáttir eða efnislega ósammála svari þýðir það ekki að það sé ekki verið að svara spurningunni. Mér finnst stjórnarandstaðan, a.m.k. sumir þingmenn stjórnarandstöðunnar, allt of oft misskilja þetta. Það að við séum ósammála þýðir ekki að það sé ekki verið að fara hér með efnisleg rök.