svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.
Frú forseti. Mig langaði að koma hérna aftur upp og það þarf kannski ekkert að ítreka það sem ég var að bera hérna á borð í gær og svara hv. þm. Degi B. Eggertssyni hér áðan en ef þetta er svona rosalega lítið mál og sjálfsagt og snýst bara um leikskólamál, hefði þá ekki verið bragur á því að hæstv. forsætisráðherra, sem sat hér framan af undir þessari umræðu, hefði stigið í þetta ræðupúlt og útskýrt þetta, að þetta snerist bara um leikskólamál og þetta væri ekkert mál? Ég held að hæstv. forsætisráðherra sé farin og ætli ekki að sitja undir þessu meir og ætli ekki að koma hér og útskýra mál sitt. Það segir allt sem segja þarf um hvað henni finnst um þetta upphlaup og þessi mistök, þau kláru mistök sem voru gerð á skrifstofu forsætisráðuneytisins og hjá aðstoðarmanni ráðherra. Það hryggir mig að hæstv. ráðherra hafi ekki séð sóma sinn í því að koma hér upp og annaðhvort útskýra mál sitt og/eða biðja okkur afsökunar.