svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.
Virðulegur forseti. Hv. þm. Dagur B. Eggertsson kom hér upp og heldur áfram þessum blekkingarleik sem hæstv. forsætisráðherra hefur viðhaft í tengslum við sveitarstjórnarkosningarnar og lætur að því liggja að fundurinn margnefndi í Kópavogi hafi gengið út á það að kynna áherslur Samfylkingarinnar í sveitarstjórnarmálum. Spurningin sem ég heyrði að var varpað fram lýtur að þeim ádrætti sem hæstv. forsætisráðherra gaf á þessum fundi um stórfelld útgjöld, 10–15 milljarða kr. útgjöld af hálfu ríkisins til sveitarstjórnarmála, sérstaklega borgarmála, til málefna borgarinnar úr ríkissjóði. Spurningin lýtur að því hvort gert hafi verið ráð fyrir þessum útgjöldum í fjármálaáætlun og þegar fyrir liggur að aðrir forsvarsmenn ríkisstjórnarflokkanna eru ekki sammála hæstv. forsætisráðherra um forgangsröðun að þessu leyti er þetta í hæsta máta eðlileg spurning og henni var varpað fram hér í óundirbúnum fyrirspurnum. Henni var varpað ítrekað fram í umræðum um fjármálaáætlun en engin svör fengust við (Forseti hringir.) þessum blekkingaráformum eða um þennan blekkingarleik sem hæstv. forsætisráðherra viðhafði svo sannarlega á kosningafundi í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga í Kópavogi á dögunum.