157. löggjafarþing — 95. fundur,  16. apr. 2026.

svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.

[11:24]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Það hlýtur að hafa verið gaman fyrir hæstv. fjármálaráðherra að vakna upp við það, þegar hann er búinn að kynna fjármálaáætlun þar sem er plús á fjárlögum á næsta ári upp á 1 milljarð, að fyrir framan Jysk í Kópavogi er búið að lofa 15 milljarða útgjöldum. Þannig að ríkið er komið í 14 milljarða mínus bara sisona, bingó. Svo kemur hv. þm. Dagur B. Eggertsson hér upp og fer að tala um leikskólana í Kópavogi og Reykjavík þegar það er landflótti starfsfólks leikskólanna í Reykjavík til að vinna í leikskólunum í Kópavogi. Ég er alveg viss um að foreldrar í Reykjavík væru tilbúnir að borga meira fyrir að koma börnum sínum á leikskóla í Reykjavík en ekki að koma þeim í leikskóla við tveggja, þriggja ára aldur. Börnin komast ekki í leikskóla í Reykjavík. Það er ágætt að tala um hvað leikskólaplássið annars staðar kostar þegar það er bara hreinlega ekki í boði í Reykjavík. Þetta er náttúrlega óboðlegur málflutningur.