áframhald aðildarviðræðna við ESB.
Frú forseti. Nú liggur ljóst fyrir með þeirri frétt sem birtist í Morgunblaðinu í morgun að hæstv. ráðherra, forystumenn ríkisstjórnarinnar, hafa annaðhvort viljandi eða óviljandi sagt þinginu og þjóðinni ósatt um aðildarviðræður við Evrópusambandið og áform um þjóðaratkvæðagreiðslu þar um. Það liggur nú ljóst fyrir að takist að endurvekja viðræðurnar þá þarf að gera það á þeim forsendum sem lagt var upp með og Evrópusambandið sjálft gerði grein fyrir því, lagði línurnar. Þar kemur skýrt fram að þessar viðræður muni ekki snúast um að sjá hvað er í boði. Áframhald viðræðna myndi eingöngu snúast um áframhaldandi aðlögun að Evrópusambandinu og umfangsmikla aðlögun. Með öðrum orðum, frú forseti, málið er hér fram komið á fölskum forsendum og við getum ekki rætt það hér áfram á þeim forsendum sem lagt var upp með. Jafnframt hlýt ég að leggja fram beiðni til hæstv. forseta um að gefið verði svigrúm í dagskrá þingsins fyrir sveitarstjórnarkosningahlé til að ræða þetta mál sérstaklega.