áframhald aðildarviðræðna við ESB.
Virðulegur forseti. Ég vil taka hjartanlega undir með þingmanninum. Það var nefnilega hluti af þeim áfanganiðurstöðum sem höfðu náðst að það sem er kallað aðlögun yrði ekki um að ræða fyrr en búið væri að samþykkja þá aðild á grundvelli samnings í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þannig að þessi upphlaup hér eru algerlega tilefnislaus, jafnvel út frá gögnunum frá 2010. Hér er bara verið að reyna að þyrla upp ryki og reyk til að breiða yfir það að það ber öllum saman um að samningsstaða Íslands er sterkari nú. Yfirlýsingar lykilforystumanna ESB eru til marks um það. Yfirlýsingar forystu íslensku ríkisstjórnarinnar eru til marks um það. En það sem fyrir okkur liggur er að við þurfum ekki að velja að trúa því sem kemur út úr samningaviðræðunum úr munni stjórnarandstöðunnar hér eða stjórnarliða. Við erum búin að setja málið (Forseti hringir.) í hendur þjóðarinnar. Þjóðin mun gefa grænt á viðræðurnar, vonandi, og síðan kemur í ljós hvernig samningum vindur fram.