Störf þingsins.
Hæstv. forseti. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins kemur fram að ein leiðanna að markmiðum ríkisstjórnarinnar sé að breyta fæðingarorlofskerfinu til að styrkja afkomuöryggi fjölskyldna. Þá skuli tryggt að tekjulægri foreldrar haldi óskertum tekjum í fæðingarorlofi og hækka skuli fæðingarstyrki námsmanna og fólks utan vinnumarkaðar. Nú þegar hefur ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur ráðist í hækkanir á lágmarksgreiðslum Fæðingarorlofssjóðs, á fæðingarstyrk námsmanna og fólks utan vinnumarkaðar. Þá hefur ríkisstjórnin lengt fæðingarorlof fjölburaforeldra og foreldra sem veikjast á meðgöngu. Jafnframt hefur ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tryggt að hækkun hámarksgreiðslna í fæðingarorlofi nái til allra foreldra óháð fæðingardegi barns. Það munar um minna fyrir barnafjölskyldur.
Það sést á framlagðri fjármálaáætlun að þrátt fyrir að það þurfi að forgangsraða stendur ríkisstjórnin vörð um þennan hóp. Samhliða þeim breytingum sem ríkisstjórnin hefur þegar ráðist í tel ég nauðsynlegt að við höldum áfram að bæta kerfið. Eitt lykilatriði er að viðmiðunartímabil fæðingarorlofsgreiðslna verði endurskoðað svo það tryggi framfærslu þeirra foreldra sem ákveða að eignast börn snemma á starfsævinni eða eignast fleiri en eitt barn með stuttu millibili. Hér á landi nær framangreint viðmiðunartímabil lengra aftur en annars staðar á Norðurlöndunum. Ég sendi því til útbýtingar í gær þingsályktunartillögu sem felur ráðherra að endurskoða fyrirkomulag viðmiðunartímabilsgreiðslna með það að markmiði að tryggja afkomuöryggi þessara hópa. Yrði þetta fyrirkomulag fært nær því sem er á hinum Norðurlöndunum hefði það afgerandi áhrif á þessa hópa en sérstaklega á feður sem oftar en ekki taka megnið af fæðingarorlofi sínu á eftir móður og eru því oft með fæðingarorlofsgreiðslur sem endurspegla illa tekjur þeirra í aðdraganda orlofstöku. Þannig tryggjum við að kerfin virki fyrir fólk.