157. löggjafarþing — 96. fundur,  17. apr. 2026.

Störf þingsins.

[11:26]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Það var hér umræða um fundarstjórn forseta við upphaf þingfundar er varðar fréttir Morgunblaðsins í dag, á forsíðu og á bls. 12, þar sem dregið er fram að enginn vafi sé á um aðlögun sem verði í gangi á meðan svokallaðar viðræður eiga sér stað og að lítið svigrúm sé í aðildarviðræðum til undanþága og þá í stuttan tíma en ekki varanlegar. Ég vil þakka þeim fulltrúum stjórnarflokkanna sem komu hér til umræðunnar því að það var býsna opinberandi með hvaða hætti hv. þingmenn vörðu málið, jafn vont og það er orðið núna, eftir að þessar nýju upplýsingar flutu upp aftur eftir að hafa verið haganlega faldar á vef utanríkisráðuneytisins um langa hríð. Því var m.a. haldið fram að hér væri verið að þæfa málið. Hver er að gera það tortryggilegt? Það er enginn að gera það nema sjálfur hæstv. utanríkisráðherra með því að birta ekki grundvallarskjal eins og þetta með gögnum málsins. Og víst er verið að fara á bak við þjóðina þegar grundvallarskjal aðildarviðræðna er ekki kynnt og fylgir ekki þingsályktunartillögu. Það er verið að fara á bak við þjóðina þegar landskjörstjórn finnur að því að bæði spurningin og svörin séu leiðandi.

Virðulegur forseti. Plaggið frá 2010 er gilt sama hvað hv. þm. Dagur B. Eggertsson segir hér í pontu. Það er ekkert annað skjal gilt einmitt af því að hæstv. utanríkisráðherra vill halda áfram þessum sömu viðræðum og upp var lagt með á sínum tíma og halda þeim áfram þar sem frá var horfið. Það er sérkennilega val hæstv. utanríkisráðherra. Hér er því haldið fram að gamla tuggan um aðlögun sé rifjuð upp. Heyrðu, sú gamla tugga er frá Evrópusambandinu enda er samningsafstaða þess augljóslega óbreytt. Það hefur ekkert annað komið fram í gögnum málsins, ekki neitt.