ákvörðun nr. 30/2024 og 68/2025 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn o.fl.
Forseti. Ég mæli hér fyrir þingsályktunartillögu um staðfestingu fimm ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar á sviði fjármálaþjónustu, félagaréttar og rafrænna fjarskipta og hljóð- og myndmiðlunar. Með ákvörðununum eru átta gerðir Evrópusambandsins felldar inn í EES-samninginn. Þessar breytingar endurspegla áframhaldandi þróun EES-samstarfsins og mikilvægi þess að tryggja samræmt regluverk á innri markaðnum.
Ég mun nú í stuttu máli gera grein fyrir helstu efnisatriðum málsins. Fyrst er það ákvörðun nr. 30/2024. Með henni eru felldar inn í EES-samninginn gerðir sem koma á samræmdu regluverki fyrir hópfjármögnun innan Evrópska efnahagssvæðisins með sameiginlegum reglum um leyfisveitingar, starfsemi og eftirlit með þjónustuveitendum slíkrar fjármögnunar. Þeim er ætlað að auðvelda fyrirtækjum, einkum litlum og meðalstórum, að afla fjármagns yfir landamæri með auknu aðgengi að fjármögnunarleiðum utan hefðbundins fjármálakerfis. Samhliða er fjárfestavernd styrkt og gegnsæi aukið. Upptaka tveggja af fyrrnefndum gerðum í EES-samninginn krefst lagabreytingar og hefur frumvarp þar að lútandi þegar verið lagt fram og bíður afgreiðslu þingsins. Ekki er gert ráð fyrir teljandi áhrifum á fjárhag ríkisins.
Forseti. Í öðru lagi er fjallað um ákvörðun nr. 68/2025. Í henni felst upptaka tilskipunar sem styrkir vernd tjónþola vegna umferðarslysa og tryggir aukna samræmingu reglna um skyldutryggingu ökutækja. Með tilskipuninni eru m.a. reglur um gildissvið vátryggingarskyldu skýrðar og tryggt að tjónþolar njóti fullnægjandi bóta, m.a. ef vátryggjandi verður gjaldþrota. Innleiðing tilskipunarinnar gæti haft áhrif á kostnað vátryggingafélaga og mögulega á iðgjöld vátryggingartaka. Fyrirhugað er að fjármála- og efnahagsráðherra leggi fram innleiðingarfrumvarp á næsta löggjafarþingi. Hvorki er gert ráð fyrir miklum áhrifum á stjórnsýslu né á fjárhag ríkisins, sveitarfélög, jafnrétti kynja eða persónuvernd.
Forseti. Þá kemur í þriðja lagi að ákvörðun nr. 158/2025 um upptöku tilskipunar sem varðar breytingar á stærðarviðmiðun fyrir örfyrirtæki, lítil, meðalstór og stór fyrirtæki eða samstæður. Markmið gerðarinnar er að uppfæra fjárhæðarmörk til flokkunar félaga til að taka mið af verðbólgu og efnahagsþróun. Með breytingunni er leitast við að draga úr stjórnsýslubyrðum með því að tryggja að færri fyrirtæki falli undir strangari kröfur um reikningsskil og skýrslugjöf sem gilda um stærri fyrirtæki. Atvinnuvegaráðherra hefur þegar lagt fram frumvarp til innleiðingar á gerðinni um breytingu á lögum um ársreikninga á þessum fundi. Hvorki er gert ráð fyrir auknum kostnaði fyrir ríkissjóð né einkaaðila.
Forseti. Þá kemur í fjórða lagi að ákvörðun nr. 159/2025. Hún tekur til tilskipunar sem eykur gegnsæi í skattamálum stórra fyrirtækja með því að kveða á um skyldu tiltekinna fjölþjóðlegra fyrirtækja til að birta opinberlega upplýsingar um tekjuskatt sem þau greiða í þeim ríkjum þar sem þau starfa. Með þessu er opinbert eftirlit og ábyrgð fyrirtækja í skattamálum skýrt. Tilgangurinn er að auka traust á skattkerfum. Upptöku gerðarinnar í EES-samninginn þarf að fylgja eftir með lagabreytingum. Það er gert í áðurnefndu frumvarpi atvinnuvegaráðherra um breytingu á lögum um ársreikninga. Hvorki er gert ráð fyrir auknum kostnaði fyrir ríkissjóð né einkaaðila.
Forsei. Þá kemur í fimmta lagi og síðasta að ákvörðun nr. 310/2025. Sú ákvörðun varðar heimildir tiltekinna fjarskiptaþjónustuveitenda til að beita tækni til að greina, fjarlægja og tilkynna efni sem tengist kynferðislegri misnotkun barna á netinu. Heimildirnar eru veittar þrátt fyrir takmarkanir sem annars leiða af reglum um persónuvernd og fjarskiptaleynd og gilda þær þar til varanlegt regluverk hefur verið sett. Breyta þarf lögum í samræmi við þessa ákvörðun og mun innviðaráðherra leggja fram frumvarp þar að lútandi á yfirstandandi löggjafarþingi, samanber nánari umfjöllun í þingsályktunartillögunni. Frumvarpið mun ekki fela í sér aukinn kostnað fyrir stofnanir innviðaráðuneytisins. Áhrif á aðrar stofnanir liggja ekki að fullu fyrir. Líklegt er að umfangið muni rúmast innan fjárheimilda en fylgst verður vel með framvindunni. Rétt er að benda á að lögreglan hefur nú þegar tekið þátt í erlendu samstarfi í barnaníðsmálum vegna ábendinga erlendis frá.
Frú forseti. Ég hef nú stiklað á stóru um efni málsins. Rétt er að taka fram að við undirbúning þessa máls var haft samráð við utanríkismálanefnd Alþingis og gerði nefndin ekki athugasemdir við upptöku þessara gerða í EES-samninginn. Nánari upplýsingar, m.a. um áhrif innleiðingar gerðanna, eru í tillögunni til þingsályktunar og greinargerð hennar.
Að þessu sögðu legg ég til að málinu verði vísað til hv. utanríkismálanefndar að lokinni þessari umræðu.