forsendur þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðlidarviðræðna.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna og legg það fram að þetta er sannarlega heiðarleg framsetning hjá okkur um hvernig við förum í þetta ferli. Mig langar til að vitna í mann sem ég hitti á fundi fyrir norðan á sínum tíma og ég hef áður talað um í þessum sal sem segir einmitt við mig: Kristrún, hverjum á ég að trúa? Ég hef hitt málsmetandi fólk sem segir að það séu kostir við að fara þarna inn, fólk sem ég trúi, og að það væru miklar framfarir sem fylgja því. Svo á hinn bóginn heyri ég fólk sem ég treysti líka og trúi, málsmetandi fólk, sem segir að það sé ekkert þangað að sækja. Kristrún, hverjum á ég að trúa? Þessum manni þurfum við að svara og eina leiðin til að fá svar við þeirri spurningu, hvað okkur býðst, er að fá að sjá samning. Það getur enginn í þessum sal, hvorki ég né hv. þingmaður, fullyrt um annað.
Það hefur hins vegar komið á daginn í þessari umræðu að það eina sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á, og þetta á við um alla flokka hér inni, er hræðsluáróður í tengslum við þessa þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta er endalaust stagl um hvort það megi spyrja þjóðina. Þetta er endalaust stagl um það hvort það sé eitthvað um að semja eða ekki. Síðan þessi þvæla — já, forseti, ég kalla þetta þvælu — um að ef þjóðin segi já fari sjálfkrafa af stað eitthvert ferli þar sem hrannast inn mál inn í þingið sem sjálfkrafa muni afgreiðast og gera það að verkum að Ísland verður orðið eitthvert annað land hérna undir lok næsta kjörtímabils. Það er auðvitað ekki þannig. Hvaða aðlögun hrökk í gang þegar síðustu aðildarviðræður fóru af stað og við sitjum eftir í svo hræðilegri stöðu út af? Getur einhver nefnt mér einn hlut? Hvaða aðlögun fór hér af stað? Það var samkomulag, eins og hér er vitnað í, um að slíkar breytingar myndu ekki eiga sér stað fyrr en búið væri að samþykkja samninginn. Svo vil ég bara segja, síðast en ekki síst, eins og hv. þingmaður á að vita: Við Íslendingar eigum stjórnarskrá. Það er þingræði í landinu (Forseti hringir.) og lögum hér verður ekki breytt án aðkomu Alþingis.